skipunartími ráðuneytisstjóra.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þessi skipan sem hv. þingmaður spyr um er gerð með vísan til heimildar 36. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar sem í er falin heimild til að færa embættismenn til í starfi og sú heimild byggir á vísun í stjórnarskrá Íslands. Hins vegar er það svo að þegar embættismaður er færður til í starfi og tekur í raun við nýju embætti hefst nýtt fimm ára skipunartímabil. Það ætti kannski að skýra sig sjálft í ljósi þess að nýr ríkissáttasemjari þarf að taka við og skipunarferlið við það embætti stendur yfir, veit ég, hjá hæstv. félags- og barnamálaráðherra, þannig að sá aðili verður sömuleiðis skipaður til nýrra fimm ára en ekki til hálfs árs þegar skipunartíma fyrri sáttasemjara lauk. Þannig að: Já, það er nýtt skipunartímabil.