150. löggjafarþing — 55. fundur,  30. jan. 2020.

niðurskurður í vetrarþjónustu Vegagerðarinnar.

[10:47]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir að taka þetta mál upp í þinginu vegna þess að það er mjög mikilvægt. Við höfum á undanförnum árum verið að auka mjög fé til samgangna í heild sinni, aukið umtalsvert fé til viðhaldsverkefna sem nemur fleiri milljörðum, tugum prósenta, og við höfum aukið fé til framkvæmda þannig að í ár verða um 27 milljarðar til framkvæmda sem er um 10–11 milljörðum meira en fyrir nokkrum árum. Það er því gríðarlegur kraftur í samgöngum á Íslandi, ekki síst í vegakerfinu. Þjónustuliðurinn hefur samhliða vaxið mjög mikið á síðustu árum. Ég er því miður ekki með tölurnar á hreinu en skal koma þeim til hv. þingmanns og þingsins hér á næstu dögum af því að ég hef beðið um að fá þá samantekt.

Við höfum sem sagt verið að forgangsraða í þágu þessa innan ráðuneytisins, innan ramma, við höfum sótt þá fjármuni til fjárlagavaldsins sem liggur hér þannig að krafan um niðurskurð kemur að sjálfsögðu ekki frá ráðuneyti samgangna. Krafan er að við stöndumst fjárlög og þá eru það þeir fjármunir sem hér eru skammtaðir við fjárlagagerðina af hálfu þingsins sem eru ekki nægir. Og af hverju eru þeir ekki nægir? Jú, það er vegna þess að þjónustan sem almenningur á Íslandi vill fá, sérstaklega þegar veturnir eru erfiðir eins og við erum að horfa upp á núna, hefur vaxið alveg gríðarlega á síðustu árum og mun fara vaxandi. Þetta er með öðrum orðum liður sem við verðum að fara að horfa á í vaxandi mæli að þurfi meiri fjármuni. Við erum öll sammála um það. En þjónustan er auðvitað miklu meira en snjómokstur, það eru hálkuvarnir og alls konar aðrar aðgerðir. Það er ekkert óeðlilegt að á öllum hliðum hjá hinu opinbera sé einhvers konar aðhald þannig að menn fari vel með fé. En hins vegar er ég sammála hv. þingmanni að við núverandi aðstæður, eins og veturinn hefur verið í vetur, getum við ekki farið að skerða þjónustu á þessum tíma. (Forseti hringir.) Ég hef beðið Vegagerðina að fara vel yfir þessa hluti en auðvitað þarf Vegagerðin eins og allar aðrar stofnanir ríkisins að standast fjárlög. (Forseti hringir.) En peningarnir koma héðan, framkvæmdarvaldið þarf síðan að fara eftir þeim reglum.