niðurskurður í vetrarþjónustu Vegagerðarinnar.
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svarið. Ef ég skil hann rétt er þetta vandamál þingsins. Ég skil það að Vegagerðinni beri að halda fjárlög. Þá ætla ég að vona að ráðherra beiti sér í því að aukið fé verði sett í málaflokkinn svo að hægt verði að standa undir lögbundinni þjónustu, að hér sé mokað. Það er leiðarstefið í samgönguáætlun sem nú er til umræðu að samgöngur um allt land verði greiðar og öruggar og þar skiptir vetrarþjónustan gríðarlegu máli. En ég held að hæstv. ráðherra ætti að ræða við fjármálaráðherra og finna lausn á þessu, það er ekki boðlegt að skorið verði niður í vegaþjónustunni. Við erum það háð þessari þjónustu og það er sá veruleiki sem við búum við. Að búa á Íslandi — það er alls konar. Það er vont veður, það er gott veður og við þurfum bara að laga okkur að því.