örorka kvenna og álag við umönnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessari umræðu og lögðu öll sem eitt gott til hennar. Hér hefur margt gott komið fram, margar góðar ábendingar. Ég þakka líka ráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni og fyrir svörin. Það er rétt, ég hefði getað hvatt til nánast alla ríkisstjórnina til að taka þátt í þessari umræðu og kannski ættum við einhvern tíma að halda málfund öll um þetta mikilsverða málefni vegna þess að það varðar svo margt. Þetta varðar ekki bara kynjapólitík, þetta varðar líka velferðarsamfélagið sjálft. Þetta varðar grunnstoðir samfélagsins okkar og hvernig samfélag við viljum vera.
Það hefur komið hérna fram að það eigi að gera fólki kleift að sinna ástvinum sínum og auðvitað viljum við gera það eins og okkur er unnt. En við verðum að ætla okkur af, við getum ekki gengið endalaust á þann forða sem við höfum. Þá erum við farin að sinna ástvinum okkar af vanefnum og þá er verr af stað farið en heima setið með slíkt. Þar verður samfélagið að hafa úrræði sem hægt er að leita í og þau úrræði þurfa að vera sterk og virk. Mér finnst okkur stundum hætta til þess að líta of neikvætt á slík úrræði. Við köllum þetta stofnanir og lítum á það sem kalda og vonda staði. Það þarf ekki að vera svo og það er ekki svo. Hins vegar er það svo að það er mannekla á þessum stofnunum. Við sem samfélag stöndum ekki sómasamlega að því að byggja upp þær stofnanir. Það vantar hjúkrunarheimili og það vantar hjúkrunarfræðinga og það vantar sjúkraliða.