fullgilding Haag-samningsins frá 1954 um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum.
Herra forseti. Eins og hv. þingmaður kom inn á snýst þetta um hvernig refsað er fyrir þessa stríðsglæpi eins og aðra stríðsglæpi vegna þess að þetta er flokkað þannig. Það er úrræðið sem við höfum í dag. Ég nefndi í framsögu minni dæmi frá þessum mánuði þegar Bandaríkjaforseti hótaði að eyðileggja menningarminjar í Íran. Það vakti gífurlega hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Yfirlýsing kom frá UNESCO, alþjóðasamtökum safna, alþjóðasamtökum menningarminjastaða, alþjóðasamtökum skjalasafna, félagasamtökum í Bandaríkjunum og einstaklingum sem eru mikils metnir á þessu sviði. Mér sýnist að það hafi orðið til þess að hann bakkaði með hótunina og það er líka einkum að þrýstingur og áhugi alþjóðasamfélagsins á þessu heldur svona mönnum á mottunni. Það er mjög mikilvægt.
Í þessu samhengi má líka minna á að Bandaríkin eru aðilar að Haag-samningnum þannig að ef Bandaríkjaforseti hefði framkvæmt þessa hótun sína hefði hann brotið gegn þessum samningi og í samningnum er kveðið á um að þjóðir skuli refsa fyrir brot á samningnum.