150. löggjafarþing — 55. fundur,  30. jan. 2020.

gerð jarðganga milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar.

299. mál
[13:44]
Horfa

Flm. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Ég hef alltaf séð fyrir mér að göngin færu úr Engidal og beint inn í botn á Álftafirði. Þá erum við líka að tala um verulega styttingu á vegalengdum fyrir íbúa Bolungarvíkur og Súðavíkur til Reykjavíkur því að þá losna menn við að fara fyrir nesið. Menn spara kannski 20 km í heildina með því að fara þá leið, hún er töluvert löng. Jarðgöng eru gríðarlega dýr og Vegagerðin horfir alltaf á að fara sem fæsta kílómetra en sú leið sem ég held að flestir tali um er að fara úr Engidal og beint inn í botninn á Álftafirði. Ég held að hún sé skynsamlegust.