gerð jarðganga milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að leyfa sér að hugsa svona hátt og láta sig dreyma. Þetta eru hugmyndir sem ég hef heyrt. Það væri afskaplega þægilegt og náttúrlega langbesta samgöngubótin ef þær hugmyndir sem hann lýsir yrðu að veruleika. Ef það er samt eitthvað sem ég hef lært á síðustu árum er að maður þarf að vera svolítið raunsær. Okkur hefur gengið mjög illa að ná jarðgöngum til þessa. Þið þekkið sögu Dýrafjarðarganga sem voru slegin út, sett inn, slegin út, sett inn og þá þurfti blóð, svita og tár til að koma þeim inn en við sjáum loksins í lokin á þeim göngum í september. Það verður mikill hátíðisdagur fyrir okkur Vestfirðinga þegar loksins verður opið á milli norðanverðra og sunnanverðra Vestfjarða. Það er líka sannkölluð samgöngubót.
Ég er alveg til í að láta mjög fljúga á þessum jarðgangadraumum hans Ólafs en raunsæið segir mér að við ættum frekar að horfa á styttri göng og vonast til að þau verði að raunveruleika, a.m.k. meðan við tvö lifum. [Hlátur í þingsal.]