150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

raforkuöryggi á Suðurnesjum.

[15:23]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Landris og jarðskjálftavirkni vestan við Grindavík undanfarna daga, eða frá því um 20. janúar, hefur ekki farið fram hjá okkur. Nokkrar sviðsmyndir hafa verið settar fram af vísindamönnum um hugsanleg áhrif þess ef virkni næði upp á yfirborðið með tilheyrandi hraunrennsli. Ég vil beina sjónum mínum sérstaklega að raforkuöryggi á Suðurnesjum í þessu sambandi. Það kom fram á fundi með Landsneti í fjárlaganefnd í morgun að ef raforkuframleiðsla stöðvaðist í Svartsengi væri eina leiðin til að senda raforku á svæðið með Suðurnesjalínu 1 sem liggur frá Hamranesi í Hafnarfirði að Fitjum í Reykjanesbæ. Það kom fram af hálfu Landsnets að Suðurnesjalína 1 gæti ekki annað álaginu sem þessu fylgdi og raforkuleysi á hluta Suðurnesja væri því óhjákvæmilegt. Þetta er að sjálfsögðu mikið áhyggjuefni, herra forseti, auk þess sem því er ósvarað með hvaða hætti raforka verði flutt til Grindavíkur undir þessum kringumstæðum.

Ljóst má vera að þörfin fyrir Suðurnesjalínu 2 er brýn. Öryggisþátturinn vegur þar þungt, ekki síst í ljósi þess sem ég hef rakið hér. Deilt hefur verið um lagningu línunnar frá því að Landsnet fékk heimild fyrir henni árið 2013 eða í ein sjö ár. Ýmislegt hefur gengið á á þessum tíma, eignarnám dæmt ólögmætt, framkvæmdaleyfi fellt úr gildi og fleira. Ljóst má vera að stjórnvöld hafa haldið illa á þessu máli og ekkert hefur verið komið til móts við hugmyndir sveitarfélagsins Voga og landeiganda um valkosti við línulögnina.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hver er staðan á þessu verkefni, Suðurnesjalínu 2 og hvernig hyggst ráðherra mæta þeim aðstæðum sem kynnu að koma upp ef raforkuframleiðsla stöðvaðist í Svartsengi?