150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

bann við jarðsprengjum.

[15:37]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Her- og stríðstól hvers konar eru skelfileg og hafa skelfilegar afleiðingar, einkum þó jarðsprengjur. Staðreyndin er sú að meira en 110 milljónir jarðsprengna liggja grafnar í jörðu. Álíka magn er í geymslu. Árlega látast um 4.000–5.000 af völdum sprengna í jörðu. Tæplega þrír fjórðu þeirra eru almennir borgarar, um 42% börn. Þetta er tekið út fyrir sviga á þann sérstaka hátt í alþjóðasamfélaginu að um það hefur verið gerður sérstakur sáttmáli, oft kenndur við Ottawa, jarðsprengjusáttmáli eins og hann er nefndur á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Þar er meginmarkmiði sáttmálans lýst þannig að hann eigi að koma í veg fyrir framleiðslu jarðsprengna sem beint er gegn fólki. Þar er líka talað um góðan árangur þess samnings, að alþjóðleg viðskipti með þessi vopn hafi lagst af.

Nú fyrir helgi bárust þau tíðindi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði gefið grænt ljós á framleiðslu nýrrar tegundar jarðsprengna. Þegar lesið er yfir Ottawa-samninginn og frásagnir af honum á heimasíðu ráðuneytisins getur ekki annað gerst en að maður velti fyrir sér hvernig þetta tvennt fari saman.

Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hann deili áhyggjum mínum af þeim nýju tíðindum um að hér fari að hefjast ný lota á framleiðslu þessara skelfilegu vopna sem, eins og ég fór stuttlega yfir, beinast fyrst og fremst að almennum borgurum og eru svo alvarleg að um þau hefur verið gerður sérstakur alþjóðlegur samningur sem Ísland undirritaði og gerðist aðili að í maí árið 1999.