bann við jarðsprengjum.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýr svör varðandi stefnu íslenskra stjórnvalda og markmið hvað þennan samning varðar. Það er ágætt að hafa það í huga að fyrir hverjar 5.000 fjarlægðar jarðsprengjur úr jörðu deyr einn af þeim sem vinnur við að fjarlægja þær og tveir særast. Það kostar 3–30 dollara að framleiða jarðsprengju. Það kostar 300–1.000 dollara að fjarlæga hana. Þótt það sé fráleitt að tala um fjármuni í tengslum við mannslíf er það samt þannig að það kostar 50–100 milljónir dollara að fjarlægja allar jarðsprengjur. Þannig að við ættum áfram að hvetja ríki heims til að vinna að því að koma öllum jarðsprengjum fyrir kattarnef, grafa þær upp sem þegar eru í jörðu og eyða þeim sem eru í birgðageymslum í staðinn fyrir að eyða fjármunum í að hanna nýjar jarðsprengjur.