150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

stefna í þjónustu við aldraða.

463. mál
[17:06]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðjón S. Brjánsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Það er gott og gagnlegt að brúa bilið og hina brúanlegu gjá milli stjórnmálaflokkanna í stjórnarandstöðu og stjórn tókst að brúa með ágætum. Vonandi verður þetta fyrsta skrefið til að byggja sterka brú á milli þessara flokka og megi þeir vinna sem best saman sem allra fyrst.

Virðulegur forseti. Snemma á síðustu öld settu menn sér það markmið, og það var göfugt, að tryggja eldra fólki öryggi síðustu æviárin. Þá var oftast verið að fjalla um eignalaust fátækt fólk sem átti ekki höfði sínu að halla á vísum stað meðal ættingja eða náinna. Þetta átti jafnvel við um aldraðra sjómenn sem voru útslitnir eftir vosbúð á sjó og höfðu ekki haft tækifæri til að tryggja sér samastað, höfðu verið langdvölum að heiman og höfðu kannski ekki náð að mynda nein fjölskyldutengsl. Þetta var sviðsmyndin sem oft blasti við í upphafi eða á fyrri hluta nýliðinnar aldar. Þannig tók Grund til starfa í Reykjavík upp úr 1920 og Hrafnista nokkrum árum síðar og við þekkjum líka lítil svokölluð elliheimili úti á landi. Að mínu áliti höfum við ekki komið okkur almennilega út úr þessum hugsunarhætti enn þá. Við erum enn að byggja upp stofnanir fyrir fólk sem er nánast úr takti við tímann. Þegar við mælum þetta við okkur sem erum eilítið yngri er þetta hlutskipti sem við getum í rauninni tæplega hugsað okkur nema þegar við erum orðin svo veik að við getum ekki aðra björg okkur veitt. Þetta er eins konar pólitísk lausn sem hefur orðið sátt um, að byggja úr steinsteypu 300 rými og málið er dautt. En þetta er bara ekki svona og við verðum að fara að hugsa upp á nýtt. Þess vegna viljum við leggja lóð okkar á vogarskálarnar til að auka umræðuna.

Birtingarmynd vandans er iðulega núna sú að aldrað fólk býr jafnvel í allt of stóru húsnæði og í óhentugu húsnæði og það á í erfiðleikum með að laga sig að breytingunum og koma sér í hentugt húsnæði. Það er kannski þarna sem við þurfum að taka til hendinni. Við félagarnir hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson leyfum okkur að leggja fyrir ráðherra fimm spurningar. Ég er búinn með tímann og ég get ekki farið yfir þær en þær lúta að öllu þessu sama, (Forseti hringir.) hvort við eigum ekki að fara að horfa til breyttra hátta og horfa til nútímans og horfa til framtíðarinnar. Og hvernig geta opinber yfirvöld lagt sitt lóð á vogarskálarnar (Forseti hringir.) til að auðvelda fólki að koma sér úr óhentugu stóru húsnæði í minna húsnæði? (Forseti hringir.) En auðvitað vitum við að það er hluti af fólki sem á ekki húsnæði og þarf á tryggu húsnæði að halda.