stefna í þjónustu við aldraða.
Virðulegur forseti. Enn og áfram þakka ég fyrir mikilvæga umræðu og góðar spurningar. Fyrsta spurningin lýtur að því hvort sú sem hér stendur telji tímabært að skoða búsetu á hjúkrunarheimili með öðrum hætti en nú er, t.d. með aukinni áherslu á heimilisbrag og sveigjanlegri félagslega aðstoð fremur en heilbrigðisþjónustu, eins og kemur fram í skriflegri fyrirspurn hv. þingmanna hér til munnlegs svars. Því er til að svara að nú þegar er lögð áhersla á það að hjúkrunarheimilum séu skapaðar aðstæður sem líkjast, eins og kostur er, húsnæði, skipulagi og aðstæðum á einkaheimilum fólks en mæta engu að síður þörfum þeirra sem hafa skerta getu til athafna daglegs lífs. Mörg hjúkrunarheimili, og þeim fer fjölgandi, starfa þar að auki eftir hugmyndafræði sem byggir sérstaklega á heimilisbrag og einstaklingshæfri þjónustu.
Einmanaleiki hefur sýnt sig að vera ein stærsta áskorun íbúa hjúkrunarheimila og því væri gagnlegt að endurskoða þjónustuformið út frá félagslegum áherslum fremur en heilbrigðisþjónustu. Ég held að það sé þörf og góð ábending. Í lok síðasta árs styrkti heilbrigðisráðuneytið Landssamtök eldri borgara til að gera fræðsluefni um að fyrirbyggja einmanaleika eldra fólks og þess má geta að það stendur til að halda sérstakt málþing um það mál. Einnig má geta þess að hjá félagsmálaráðherra starfar líka starfshópur sem skoðar sérstaklega lífskjör og aðbúnað aldraðra.
Hv. þingmaður spyr hvort ráðherra telji að fjárhagsleg umgjörð í starfsemi hjúkrunarheimila sé í nútímalegu og eðlilegu horfi, t.d. hvað varðar greiðsluhlut skjólstæðinganna sjálfra. Fyrirkomulagið eins og það er núna er þannig að greiðsluþátttaka íbúa hjúkrunarheimila er tekjutengd og heildargreiðslur íbúa árið 2018 námu um 5% af heildarkostnaði við rekstur hjúkrunarrýma. Eins og mannfjöldaspár hafa sýnt okkur er það algjör nauðsyn að endurskoða fyrirkomulag þjónustu við aldraða almennt og finna henni besta lausn og þar með talið þennan þátt sem þarf nauðsynlega að endurskoða í þeirri heildarendurskoðun því að þetta eru augljóslega leifar frá gömlum tíma.
Spurt var um það hvort ráðherra teldi tímabært að huga að grundvallaráherslubreytingum í þjónustu við aldraða þar sem markvisst verði horfið frá stofnanauppbyggingu en í stað þess gerð langtímaáætlun um húsnæðisátak í þágu aldraðra samhliða raunverulegu átaki heimaþjónustu, bæði á félags- og heilbrigðissviði. Mitt svar er það að greining míns ráðuneytis á þeim kostnaði sem óbreytt notkun hjúkrunarheimila hvað varðar hlutfall búsetu og aldurssamsetningu hefði í för með sér sýnir að það er áríðandi að uppbygging þjónustu við aldraða sé fyrst og fremst uppbygging stuðnings við sjálfstæða búsetu. Það er það sem skiptir mestu máli. Það skiptir líka mestu máli að sú áherslubreyting sé sveigjanleg og fjölbreytt og í samstarfi við sveitarfélögin en ekki síður verðum við að halda því til haga að fyrirhuguð uppbygging hjúkrunarrýma er samt sem áður nauðsynleg. Það er ekki hægt að falla frá þeim uppbyggingaráformum í ljósi mannfjöldaspár. Langtímaáætlun til uppbyggingar samþættrar þjónustu sem væri byggð á stigvaxandi þörfum hins aldraða, sem er grundvallaratriði hvort sem er um að ræða félagsþjónustu eða heilbrigðisþjónustu, er nauðsynleg. Ég hef lagt áherslu á að efla dagdvöl og heimahjúkrun og ég mun halda áfram þeirri stefnu og ég held að það þurfi að stórauka heimahjúkrun. Við erum miklir eftirbátar nágranna okkar á Norðurlöndunum í þeim efnum. Mögulega þarf að stíga enn þá róttækari skref í áttina til samþættrar teymisvinnu í þjónustu við fólk í heimahúsum sem stundum hefur, með leyfi forseta, verði kallað „hospital at home“, en ég hef ráðstafað fjármunum inn í að styrkja heimaþjónustu og heilsueflandi móttökur sem eru allt skref í þá átt.
Ég er spurð hér sérstaklega um grundvöll til samvinnu við Íbúðalánasjóð. Slík samvinna hefur ekki komið til tals en ég hef fyrst og fremst lagt áherslu á eflingu þjónustu sem styður aldraða til sjálfstæðrar búsetu eins lengi og verða má og stefna stjórnvalda býður en allar hugmyndir eru velkomnar í þeim efnum. Ég var spurð um það hvort ég muni beita mér fyrir auknum framlögum til málaflokksins á næstu árum og það er fljótlegt svar: Já, ég mun gera það. Ég mun halda áfram að beita mér fyrir auknum framlögum til heilbrigðismála almennt. Það hef ég gert frá því að ég tók við embætti. Ég hef lagt áherslu á eflingu heilbrigðisþjónustu við aldraða í starfi mínu sem heilbrigðisráðherra sem hefur verið sérstakt áherslumál mitt og þau mál verða áfram í brennidepli í mínum huga.