stefna í þjónustu við aldraða.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort forseti og fjölmiðlar átti sig á þeim stórtíðindum sem hafa verið að eiga sér stað í samskiptum þingmanna, en í fullri alvöru þá vil ég þakka kærlega fyrir að hv. þingmenn eru hér saman um að vekja máls á þessari umræðu og þessu umræðuefni. Það er algerlega ljóst að sum verkefni samfélagsins eru þannig að við eigum að taka höndum saman. Það eru alveg örugglega einhver álitamál og einhver ágreiningur en það er mikilvægt í ljósi þess að hér erum við að tala um þjónustu, vaxandi þjónustu fyrir það fólk sem byggði þetta samfélag upp, að við berum til þess gæfu að halda okkar ágreiningi til hlés á meðan við reynum a.m.k. að beina sjónum okkar að því sem við erum þó sammála um. Ég heyri engan í þingsalnum andmæla því að við verðum að auka áherslu á sveigjanleg og fjölbreytt úrræði fyrir aldraða, að við verðum samt sem áður að halda áfram uppbyggingu hjúkrunarheimila þar sem verði að vera meiri heimilisbragur og hlýlegra umhverfi sem er fyrst og fremst heimili fyrir fólk. Við höfum dæmi sem eru góð, eins og um sveigjanlega dagdvöl á Akureyri og stigvaxandi þjónustu sem þar er veitt þar sem fólk getur mætt kl. 8 á morgnana en líka kl. 12 ef það kýs að sofa lengur heima. Það getur verið um helgar en það getur líka sleppt því o.s.frv. Þá er það ekki þannig, eins og hv. þingmaður var að nefna áðan, að allir eigi að fara á fætur á sama tíma, borða á sama tíma o.s.frv. Væntanlega er ólíklegt að það fari að henta okkur skyndilega þegar við verðum gömul að haga okkur öll eins því að það hentar okkur greinilega ekkert sérstaklega vel í amstri dagsins að vera nákvæmlega eins og við ættum ekki að fara að taka upp á þeim óskunda þegar við verðum gömul.