150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

málsmeðferð hjá sýslumanni í umgengnismálum.

357. mál
[18:08]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa umræðu en tel ekki rétt að ræða hér einstök mál þar sem ég hef hvorki forsendur til þess né leyfi viðkomandi aðila. Það er mikilvægast í þessum málum að allar þær tilkynningar sem koma fram séu teknar alvarlega og heildstætt mat lagt á þau gögn sem liggja fyrir og að réttur barnsins sé virtur og hagsmunir þess hafðir að leiðarljósi í því hvernig úrskurðað er um umgengni. Eins og ég hef áður sagt er verið að skoða þessi mál í ráðuneytinu. En af því að hv. þingmaður nefnir hér í lokin tölur þá er verið að þróa starfskerfi sýslumanna til að geta tryggt betra aðgengi að upplýsingum og gögnum, og þá tölfræðiupplýsingum til að geta metið það hvernig lagabreytingar og aðrar breytingar hafa haft áhrif. Það er auðvitað mikilvægt til að sjá hvernig við getum gert betur af því að það er ávallt þannig með kerfi sem snúa að fólki að við eigum alltaf að vera að skoða hvort það sé eitthvað sem við getum gert betur miðað við þau dæmi sem við höfum.