umgengnisréttur og hagur barna.
Virðulegi forseti. Hér er að finna síðustu fyrirspurn mína af þremur til hæstv. dómsmálaráðherra en ég tek undir það með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að þetta hefðu mátt vera skriflegar fyrirspurnir. Ég er hins vegar með nokkrar slíkar í handraðanum sem munu fylgja þessum munnlegu fyrirspurnum eftir. Það sem ég var kannski fyrst og fremst að leitast eftir með þessum munnlegu fyrirspurnum var að fá afstöðu ráðherra fram, hvort hún telji nógu vel haldið á umgengnismálum þegar kemur að ótta um að börn hafi orðið fyrir ofbeldi eða aðrir í nánum samböndum. Mér finnst það ekki koma nógu skýrt fram í svari ráðherra hvort henni finnist að svo sé og hvort sýslumannsembættið á höfuðborgarsvæðinu standi nógu vel að þessum málum. Ég hef, eftir að hafa lesið frásagnir þolenda í fjölmiðlum, töluverðar áhyggjur af stöðu mála. Þar er vísað í gögn og þar er verið að vitna í þessi einstöku mál sem ég nefndi áðan og ég tel mig hafa fulla heimild til að ræða þau í þessum ræðustól vegna þess að um er að ræða opinber málefni sem rædd hafa verið af einstaklingunum sjálfum. Ég er því hér með mína síðustu fyrirspurn í bili til hæstv. ráðherra og spyr:
Hvaða gögn um ofbeldi gegn barni, foreldri eða öðrum á heimili barns hafa vægi við mat sýslumanns þegar úrskurðað er um umgengni samkvæmt 47. gr. barnalaga og þegar dómari sker úr um forsjár eða lögheimili barns samkvæmt 34. gr. laganna? Er ávallt litið til þess ef skýrslur úr Barnahúsi, lögregluskýrslur eða önnur sambærileg gögn liggja fyrir?
Hæstv. ráðherra hefur nú svarað þessu að einhverju marki og ég vil því kannski einblína sérstaklega á síðari spurninguna í þessari fyrirspurn. Hún er:
Hvernig getur foreldri tryggt að barn þurfi ekki að umgangast hitt foreldri sitt ef yfirvöldum hefur verið greint frá ofbeldi þess foreldris gegn barninu eða öðrum nákomnum því, samanber 46. gr. barnalaga þar sem segir að barn skuli njóta umgengni ef það er ekki andstætt hag þess?
Ég spyr sérstaklega vegna þess sem ég minntist á áðan við hæstv. ráðherra sem snýr að því að sýslumannsembættin álíta tálmun vera ofbeldi. Ef þau álíta tálmun vera ofbeldi, þrátt fyrir að umkvartanir um kynferðisofbeldi eða alvarlegt líkamlegt ofbeldi liggi fyrir, hvernig er greint þar á milli? Telur ráðherra ásættanlegt að túlkun sýslumannsembættanna á inntaki þess að hamla umgengni sé önnur en t.d. ríkissaksóknara og önnur en sú sem skýrt stendur í lögum, þegar það snýr að tálmun? Telur hún það ásættanlegt? Þarf ekki að breyta þessu svo að það sé alveg skýrt hvernig sýslumannsembættin túlka hvað sé barni fyrir bestu ef þau hafa aðra lagatúlkun en t.d. ríkissaksóknari og ef það virðist ekki hafa lagastoð í lögunum sjálfum?