150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

umgengnisréttur og hagur barna.

358. mál
[18:17]
Horfa

Halla Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mér fannst ástæða til að koma upp og fagna þessari umræðu, bæði til að þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör og fagna þeirri yfirlýsingu sem fram kom um skoðanir á því að skerpa á heimildum til að vísa málum frá. Við sjáum að stundum ganga menn út með úrskurð og inn aftur og stofna nýtt mál. Ég hef smááhyggjur, og deili þeim með málshefjanda og reyndar dómsmálaráðherra líka, af málsmeðferðinni í þessum málaflokki og þá bæði á stjórnsýslustigi og dómstigi. Mér finnst vísbendingar um að grunur um ofbeldi sé ekki tekinn alvarlega þegar það er í tengslum við forsjármál og kannski styðjumst við í of ríkum mæli við grundvallarreglur refsiréttar og höndlum þessi mál sem refsimál í tilfellum þar sem þau eru það raunverulega ekki, heldur erum við að fjalla um hagsmuni barns. Þá þarf stundum að fjalla um hvar séu meiri líkur en minni en kannski ekki beint út frá reglum sakamálalaga. Mig langar bara að koma hingað upp og hvetja til þess að þessi umræða haldi áfram og af yfirvegun og ábyrgð.