150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

fjármálastofnanir og aðgerðir í loftslagsmálum.

340. mál
[18:24]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Ég ætla að eiga hér orðastað við hæstv. og fjármála- og efnahagsráðherra um loftslagsmál. Ég hef gert það að leik mínum hér í þessari pontu að eiga orðastað við nokkra ráðherra um þessi mál. Mér er mjög í mun að við náum þeirri hugarfarsbreytingu og almennu breytingum, sem við tölum gjarnan um á hátíðarstundum að við þurfum að ná í baráttunni gegn loftslagsvánni, í eitthvað praktískt inn í kerfið okkar, inn í lögin, að við nýtum allt sem mögulegt er til að berjast gegn loftslagsvánni.

Þess vegna langaði mig að ræða við hæstv. ráðherra því að Ísland er eitt af aðildarríkjum Parísarsáttmálans og hann er víðfeðmur eins og gefur að skilja. Í 2. gr. er talað um eðli Parísarsamningsins og hvernig eigi að styrkja hnattræn viðbrögð við þeirri ógn sem stafi af loftslagsbreytingum að teknu tilliti til sjálfbærrar þróunar og viðleitni til að útrýma fátækt. Eitt af því sem kveðið er á um að grípa eigi til í því skyni er að, með leyfi forseta, „gera fjármagnsflæði samrýmanlegt við ferli í átt að lítilli losun gróðurhúsalofttegunda og þróun viðnáms gegn loftslagsbreytingum“.

Með öðrum orðum: Það á að nýta það fjármagn sem í samfélaginu er, fjármagnsflæðið, til að berjast gegn loftslagsvánni. Samkvæmt Parísarsáttmálanum á að nýta fjármagnsflæðið gegn loftslagsvánni. Eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum gefur kost á því og þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra að því í fyrsta lagi hvernig hann telji að uppfylla megi ákvæði c-liðar 2. gr. Parísarsamningsins, sem ég las hér upp áðan, um aðgerðir í loftslagsmálum, sem fullgiltur var á Alþingi 19. september 2016, í gegnum eignarhald ríkisins á fjármálastofnunum og eigendastefnu. Í öðru lagi: Hvernig hugnast ráðherra að vinna að því að setja lánastofnunum almenn skilyrði um að taka skuli tillit til kolefnisspors verkefna í mati á lánshæfi?

Þetta snýr sem sagt að öðrum kosti að því að nýta eignarhald ríkisins og það tækifæri sem það gefur og hins vegar um almennar reglur um lánastofnanir hér á landi.

Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að það sé úrelt hugsun að hugsa lánastofnanir og þeirra reglur eingöngu út frá gamaldags arðsemissjónarmiðum, það þurfi alltaf að taka loftslagsmálin þar inn í, þó ekki væri nema t.d. verð á kolefnisheimildum og fleira slíkt.