fjármálastofnanir og aðgerðir í loftslagsmálum.
Herra forseti. Þetta er mjög áhugaverð fyrirspurn og sömuleiðis svör hæstv. ráðherra. Ég tel einboðið að ekki aðeins ríkisstofnanir setji sér loftslags- og umhverfisstefnu og meti sitt vistspor heldur að ríkisbankar geri það. Ríkislánsfjármagn má vera skilyrt árangri í loftslagsmálum og það sem meira er, það getur átt við allt lánsfjármagn, enda er lánsfjármagn eða fjármagn yfir höfuð lykillinn að hraðari árangri í loftslagsmálum. Auðvitað geta verið til undantekningar eftir verkefnum en samtímis þessu væri líka ráð að kanna hvort og hvernig ákvarða megi einhvers konar hvata til fjármálafyrirtækja um að fara þessa vistvænu leið í starfi. Það væri til umhugsunar.