150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

fjármálastofnanir og aðgerðir í loftslagsmálum.

340. mál
[18:34]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé fyrir að leggja fram þessa fyrirspurn og hæstv. ráðherra fyrir að bregðast við. Ég held að þessi umræða eigi fyllilega erindi í þingsalnum. Hér er um að ræða eitt allra stærsta samfélagsverkefni okkar, loftslagsmálin, og það er alveg ljóst að þau verða ekki leyst hér í þessum sal eða í þingsölum um gjörvallan heim, þau verða leyst með samstilltu átaki og ekki síst atvinnulífs og stjórnvalda. Þess vegna hef ég fagnað mjög samráðsvettvangi stjórnvalda og atvinnulífsins um loftslagsmál. Ég held að það sé einmitt full ástæða til þess að skoða frekari hvata til þess að hvetja fyrirtæki áfram, hvort sem það eru fyrirtæki, fjármálastofnanir í eigu hins opinbera eða einkageirans. En það er líka mjög ánægjulegt að sjá það, alveg eins og hæstv. ráðherra kom inn á, hvað það er gríðarlega mikil vakning hjá þessum aðilum. Ég held að það sé varla hægt að heimsækja burðugt og flott fyrirtæki í dag öðruvísi en að loftslagsmál og samfélagsleg ábyrgð sé á dagskrá af fullri alvöru hjá slíkum fyrirtækjum, enda á ekkert fyrirtæki erindi til framtíðar öðruvísi en að hafa það á sinni stefnuskrá.