150. löggjafarþing — 56. fundur,  3. feb. 2020.

fjármálastofnanir og aðgerðir í loftslagsmálum.

340. mál
[18:35]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra meira en ágætt svar. Þetta var fínasta yfirlit yfir það sem er að gerast. Og ég hvet hæstv. ráðherra til að nýta sér þetta svar og skrifa eins og eitt greinarkorn um þessi mál, gæti birt það í Vísbendingu eða einhvers staðar, því að það er hárrétt sem hefur komið fram í þessari umræðu að það er mikið að gerast í þessum málum. Skyldi engan undra því að við höfum talað lengi um að það þyrfti að gera eitthvað og tími aðgerða er löngu runninn upp.

Hæstv. ráðherra kom inn á það að bankar, bæði Landsbanki og Íslandsbanki og fleiri raunar, hefðu lánað til verkefna sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er vel, annað væri nú. Ég held hins vegar að það þurfi að stíga skrefinu lengra því að við að lesa það sem við skrifuðum undir og fullgiltum í Parísarsáttmálanum þar sem segir, með leyfi forseta, „gera fjármagnsflæði samrýmanlegt við ferli í átt að lítilli losun gróðurhúsalofttegunda og þróun viðnáms gegn loftslagsbreytingum“, er ekki annað hægt en að draga líka þá ályktun að það eigi ekki að lána til verkefna sem auka við losun gróðurhúsalofttegunda. Það hljóta að vera tvær hliðar á þessum peningi, það snúist ekki bara um verkefni sem draga úr losun heldur líka að lána ekki til verkefna sem auka við losun. En það er eitt af því sem breyttist varðandi þessi mál í þessum alþjóðasamningum öllum, nú þarf hvert og eitt land að búa sér til sín markmið um samdrátt í losun. Þess vegna getur hvert og eitt verkefni sem lánað er til haft áhrif á allan ríkisbúskap.

Í þessu samhengi langar mig í lokin að koma örlítið inn á það sem ég rétt tæpti á í lokin áðan, þ.e. losunarheimildir sem verða æ dýrari, eðlilega, þannig að fyrirtækin þurfa að fara að reikna þetta inn í sinn útreikning. (Forseti hringir.) Landsvirkjun farin að horfa til innra kolefnisverðs, svo dæmi sé tekið.