lýðvísindi.
Herra forseti. Þátttaka almennings í vísindastarfi á sér langa sögu hér á landi og reynslan er góð. Slíkt samstarf almennings, félagasamtaka og vísindastofnana hefur skilað alls kyns þekkingu, t.d. í jarðfræði, veðurathugunum, rannsóknum á jöklum, fornleifum, fuglum, selum og fiskum, svo að eitthvað sé nefnt. Algengasta formið á samstarfinu hefur verið að áhugafólk kemur tölulegum gögnum og öðrum upplýsingum í hendur sérfræðinga til úrvinnslu en hefur litla aðkomu að verkefnum að öðru leyti nema einna helst innan ramma Jöklarannsóknarfélags Íslands, allt frá stofnun þess 1950.
Með tækniframförum síðari ára hafa opnast byltingarkenndir möguleikar til að byggja öflugri brýr milli vísinda, almennings, stefnumótunar og hagnýtrar þekkingar. Með því að efla hlutverk almennings er unnt að leysa úr læðingi margfeldisáhrif sem ná langt út fyrir þekkingaraukann sem slíkan, ekki síst í formi viðhorfsbreytinga, læsis á umhverfi okkar, ábyrgari hegðunar og aukinnar færni í umönnun náttúrugæða. Slíkt samstarf ber ýmis heiti. Það fer m.a. eftir verkefnum og tilgangi þeirra, heimshlutum og skilgreiningu, en ensk hugtök eins og, með leyfi forseta, „citizen science“ og „cogeneration of knowledge“ eru dæmi þar um. Hér á landi hefur nýyrðið lýðvísindi verið notað, í íslensku. Þessi opnun vísindastarfs táknar breytingu frá því að framkvæma rannsóknir „á“ yfir í rannsóknir „með“ og felur í sér valdeflingu í samfélaginu sem er afar mikilvægt. Þetta eykur þekkingu meðal þátttakenda og sérfræðinga, eykur ábyrgð þegnanna sjálfra og flýtir fyrir því að verkefnunum ljúki.
Þróun lýðvísinda hefur verið mjög hröð undanfarin ár og fjölmörg verkefni og samtök hafa sprottið upp. Þar hafa umhverfis- og loftslagsmál vegið mjög þungt. Sama gildir um þá ríku flóru greina, rita og bóka sem styrkja grunninn. Ýmis þjóðríki, þar á meðal Þýskaland, Kanada og Ástralía, hafa unnið að stefnumótun á þessu sviði og sett einhvers konar lög og reglur jafnvel. Slík áhersla kemur einnig fram hjá Evrópusambandinu sem hvetur til opnari vísindastarfa með þátttöku almennings.
Haustið 2019 stóðu Landgræðsluskólinn, Landgræðslan og Landvernd fyrir málstofu á Hringborði norðurslóða og skömmu síðar stóðu Norræna húsið, Landgræðsluskólinn, Landvernd, Fuglavernd, Rannsóknarsetur um norðurslóðir og umhverfis- og auðlindafræði í Háskóla Íslands að tveimur málstofum þar sem þessi reynsla var rædd.
Nú langar mig að beina fyrirspurn til hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, sem hljóðar svo:
1. Telur ráðherra að skipuleg, og sem víðtækust, þátttaka almennings í að aðstoða við vísindastörf – svokölluð lýðvísindi (e. citizen science) – sé mikilvæg?
2. Er þörf á að setja lýðvísindum ramma með lögum eða reglugerðum, líkt og tíðkast t.d. í Þýskalandi?