150. löggjafarþing — 57. fundur,  4. feb. 2020.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Herra forseti. Sunnudagurinn var sannur gleðidagur fyrir litla fjölskyldu í Vesturbænum, foreldra sjö ára drengs. Þau höfðu beðið á milli vonar og ótta um hver yrðu afdrif þeirra, hvort þau myndu fá að vera í friði og ró á Íslandi eins og þau óskuðu sér heitast eða snúa til Pakistans daginn eftir hvar móðurinni er raunveruleg hætta búin á heiðursmorði eða grafalvarlegum ofsóknum. Samstaða nærsamfélagsins í Vesturbænum, sem teygði sig svo víðar, var ótrúleg. Rúmlega 19.000 undirskriftir fólks um allt land til stuðnings fjölskyldunni sýndu svart á hvítu að það er almennur vilji til að sýna miklu meiri mannúð þegar kemur að móttöku barna og fjölskyldna sem til okkar leita eftir alþjóðlegri vernd. Sem betur fer hlustuðu nokkrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar á vilja fólksins í þessu máli. Um leið og farsæl lausn fannst á máli litlu fjölskyldunnar, sem nýtist líka fáeinum öðrum fjölskyldum í svipaðri stöðu, er ekki um framtíðarlausn að ræða á því hvernig lög útlendingamála, framkvæmd og meðferð þeirra á að vera til frambúðar. Að stytta málsmeðferðartíma barnafjölskyldna úr 18 mánuðum niður í 16 er einfaldlega plástur.

Líkt og minnt var á í gær ákváðu formenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins fyrir rúmum tveimur árum að breytingar á útlendingalögum og heildarendurskoðun á þeim yrðu algjört forgangsmál að afloknum þingkosningum þar sem helst yrði litið til barna og fólks í viðkvæmri stöðu við þá stefnumótandi vinnu. Um þetta er meira að segja fjallað í stjórnarsáttmálanum. Af hverju höfum við þurft að bíða í heila 26 mánuði eftir breytingum á útlendingalögunum og að heildarendurskoðun yrði það forgangsverkefni sem lofað var með mannúð að leiðarljósi? Á meðan ekkert hefur mjakast í átt til bjartari og mannúðlegri tíma í þessum málaflokki hér á Alþingi hefur það gerst reglulega að við endursendum fólk í óboðlegar aðstæður til Grikklands eða iðkum tanngreiningar á fylgdarlausum börnum því að við erum svo upptekin af aldri þeirra í stað þess að taka þeim opnum örmum. Á meðan þetta er að gerast tekur venjulegt fólk úti um allt land afstöðu með mannúðinni þegar upp dúkka sorgleg mál sem hreyfa við fólki.

Við eigum að hlusta þegar Rauði krossinn og UNICEF tala. Við eigum að hlusta þegar almenningur talar, (Forseti hringir.) þegar almenningur sýnir enn og aftur í verki að mannúðin verður að vera í algjörum forgangi þegar um meðferð útlendingamála er að ræða, (Forseti hringir.) því að samfélög eru nefnilega metin út frá því hvernig þau koma fram við þau sem minnst mega sín.