150. löggjafarþing — 57. fundur,  4. feb. 2020.

stjórn fiskveiða.

118. mál
[17:40]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég deili þeim áhuga með hv. flutningsmanni þessarar tillögu að bæta strandveiðikerfið eins og hægt er. Ég sat einmitt í hv. atvinnuveganefnd sællar minningar þegar strandveiðikerfið var fest í sessi, eins og hv. þingmaður komst réttilega að orði undir tryggri forystu hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur. Ég er þess vegna mjög opinn fyrir öllum hugmyndum um betrumbætur á kerfinu. Ég er alveg viss um að hægt er að gera ýmislegt til að bæta kerfið og gera það enn skilvirkara og betra fyrir strandveiðimenn um allt land. Ég held til dæmis, svo ég tali út frá eigin brjósti, að það að festa ekki endilega sömu mánuði alls staðar um allt land sé eitthvað sem við eigum að hugsa. Sums staðar byrji vertíðin fyrr, annars staðar endi hún síðar o.s.frv. Þess vegna finnst mér tillagan mjög áhugaverð þó að ég sitji ekki í hv. atvinnuveganefnd og ég muni ekki fjalla um hana þar, en ég mun að sjálfsögðu fylgjast með og taka þátt í vinnu hennar áfram sem þingmaður.

Ég velti einu fyrir mér og langar að spyrja hv. þingmann um það af því að hér er sagt að þetta muni nánast fortakslaust auka þá fjármuni sem veiðarnar skapi: Hvað liggur þar að baki? Er það misskilningur hjá mér að hugsunin að veiða ekki á föstudögum, laugardögum og sunnudögum tengist t.d. því að þá séu fiskmarkaðir ekki opnir þannig að það geti haft áhrif á það verð sem fæst fyrir fiskinn?

Ég spyr til að eiga umræðu um það, ekki af því að ég telji að það eigi að banna eins og gert er í dag, ég tek það fram.