150. löggjafarþing — 57. fundur,  4. feb. 2020.

meðferð sakamála.

140. mál
[19:01]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M):

Frú forseti. Ég er ánægður með þessa umræðu. Hún hefur hins vegar þróast þannig að við erum ekki, að ég tel, að bera saman epli og epli. Við erum að bera saman epli og járnkarl eða eitthvað slíkt. Það kemur enn að því að mér þykir gæta nokkurs misskilnings hjá hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé. Hann hefur sagt að mörgum þingmönnum finnist ekki að það eigi að taka mynd af þeim hvar og hér. Þá segi ég aftur: Þingmenn völdu að verða þingmenn, þeir sóttust eftir því, fengu til þess stuðning. (Gripið fram í.) Ég veit ekki til þess að vitni í sakamáli hafi endilega sóst eftir því að vera vitni í sakamáli. Og alveg eins og við hv. þingmenn sækjumst eftir opinberu embætti þá gerum við okkur að sjálfsögðu grein fyrir því, áður en við förum af stað í þá vegferð, að líf okkar tekur væntanlega breytingum. En maður nokkur eða kona úti í bæ sem eru kölluð til vitnis í dómsmáli hafa ekki valið sér það að láta kalla sig til vitnis í dómsmáli. Mörgum þykir það mjög óþægilegt að fara inn í dómsal, bara yfir höfuð að mæta þar. Ég skil þá tilfinningu mætavel og hvað þá heldur ef þeim mæta ótal linsur á leið þeirra að og frá. Við erum í sjálfu sér í grunninn, að ég tel, að ræða um muninn á rétti fólks til einkalífs og rétti annarra til að vita um einkalíf fólks. Þá segi ég aftur: Fólk sem ekki hefur valið sér það að vera í einhverju kastljósi heldur er dregið inn í kastljósið hefur þennan rétt að mínu mati. Fólk sem hefur aftur á móti valið sér þann vettvang að vera í kastljósi, hefur sóst eftir því að vera þar og sumir fengið óskir sínar uppfylltar, er bara að mínu áliti, frú forseti, í allt annarri aðstöðu en fólk sem ekki hefur valið sér það hlutskipti að verða t.d. vitni.

Nú ætla ég heldur ekki að segja það og mér kemur ekki til hugar að segja það að menn sem eru sakborningar í einhverju máli hafi endilega valið sér það hlutskipti. Menn verða fyrir ýmsu á lífsleiðinni og það eru ýmsar ástæður sem verða til þess að menn gerast brotlegir við lög. Ég sé ekki alveg í hendi mér að með því að einhver hafi gerst brotlegur við lög þá eigi andlit hans eða persóna endilega erindi, sérstaklega meðan hann er sakborningur og/eða grunaður, ég tala nú ekki um ef viðkomandi reynist svo saklaus eftir allt saman. Hann er færður sem sakborningur í dómsal og hann gengur út frjáls maður, þ.e. saklaus. Þess vegna skil ég ekki alveg, og það er þá örugglega gagnkvæmt eins og ég heyri á hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé, hann virðist ekki skilja það sem ég er að fara og ég skil ekki alveg það sem hann er að fara (KÓP: … ósammála.)

Spurningin snýst í mínu hugarfylgsni fyrst og fremst um það að einkalíf fólks sé virt og að einkalíf fólks eigi ekkert sérstakt erindi í fréttatíma eða á forsíður blaða ef fólk ekki kærir sig um að það fari þangað. Það er hins vegar þannig að dómasafnið er opið og allt þetta. Hér í þinginu eru t.d. mjög margir sem hafa talað mjög í þá átt að draga eigi úr refsigleði, að draga eigi úr refsingum fyrir smávægileg brot. Það er út af fyrir sig líka refsing, frú forseti, í því fólgin að myndir séu birtar af manni þegar maður á leið í dómhús og ég tala nú ekki um ef maður reynist saklaus. Þarna er ég, frú forseti, ekki bara að tala út í loftið, ég er að tala um þetta vegna þess að reyndir lögmenn með áratugareynslu í málflutningi fyrir dómi hafa bent á þessa staðreynd um menn sem eru á leið til dómhúss og reynast síðan jafnvel saklausir, að þetta hafi markað líf þeirra margra upp frá því. Það er kannski slíkt sem er líka verið að hugsa um í þessu, að draga úr áhættunni á að það gerist.

Ég verð að segja líka við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson að það er ekki í mínum huga sambærilegt atriði að vera á nefndarfundi Alþingis eða í yfirheyrslu í dómhúsi. En það er kannski bara ég. (KÓP: Ekki einu sinni stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.) — Ekki einu sinni þar. Að vísu eru menn náttúrlega bundnir af leikreglum á þeim vettvangi sem illu heilli hafa stundum ekki haldið þannig að það eiga sér stað alls konar brot hvar sem er, meira að segja í þessum þingsal og því sem honum tengist. Það er nú bara þannig. En það er ekki endilega víst að þeir sem gerast brotlegir hér eða einhvers staðar annars staðar séu eltir uppi á leið að eða frá í því augnamiði að fylgja eftir sekt þeirra eða eitthvað slíkt, ekkert endilega. Við hv. þingmenn völdum að vera í þessu kastljósi en þeir sem gerast brotlegir við lög og hvað þá heldur þeir sem eru kallaðir til vitnis í dómsmálum eru ekki þar einfaldlega vegna þess að þeir vilji það eða þá langi sérstaklega til þess. Sá er reginmunurinn. Þess vegna get ég ekki séð, en það er bara eðlilegt vegna þess að ég og t.d. hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé erum ekki sammála, að með þessu frumvarpi sé verið að loka á einhver réttindi sem annaðhvort blaða- og fréttamenn og/eða almenningur hafa til upplýsinga. Því fer fjarri. Það er einfaldlega verið að fara svipaða leið og nágrannalönd okkar hafa farið, sem við berum okkur mjög oft saman við að mjög mörgu leyti og höfum mjög margt þegið af þeim bæði í uppbyggingu laga og réttar og reglna. Þar eru þessar myndatökur og hljóðupptökur einfaldlega ekki leyfðar.

Nú ætla ég aftur að segja það sem ég sagði í framsöguræðu minni en kom kannski ekki nógu skýrt fram, að nú eru myndavélar og tæki orðin mun næmari en var hér áður og það er t.d. til þess tekið í greinargerð að hugsanlega sé hægt að dreifa myndum af málsskjölum úr dómsal vegna þess að menn eru það vel tækjum væddir. Það er því ýmislegt á að horfa í þessu efni. En í mínum huga, og ég held flestra sem að þessu máli standa, snýst málið einfaldlega um réttindi þeirra sem eiga erindi í dómsal, viljugir og/eða nauðugir.