150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

barnavernd.

[10:53]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Hæstv. barnaverndarráðherra Ásmundur Einar Daðason bað um að fá að kalla sjálfan sig barnamálaráðherra. Hann bað um að fá að vera ráðherra barnaverndar. Ríkisstjórnin treysti honum fyrir því að vera ráðherra barnaverndar og forseti Íslands fól honum valdið til þess að vera ráðherra barnaverndar. Það segir í forsetaúrskurðinum, þar sem hæstv. ráðherra Ásmundi Einari Daðasyni er falið það vald, að hann beri ábyrgð á því og hafi valdið til að sinna barnavernd og fara með málefni Barnaverndarstofu.

Landslög segja að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang, líka þegar ráðherra barnaverndarmála geri ráðstafanir sem varða börn. Síðan þau lög voru sett hefur yfir 300 börnum verið vísað úr landi án þess að yfirvöld viti hvað verður um þau. Hæstv. barnaverndarráðherra veit ekki hvað varð um þessi börn sem hann er lögbundinn til að vernda. Ef hann vill ekki beita því valdi sem hann hefur til að vernda börn án mismununar, óháð stöðu foreldra, þá á hann að leyfa öðrum ráðherra með forsetaúrskurði að taka yfir þetta svið Barnaverndar. Ef hann vanrækir það að nota valdheimild sína sem ráðherra til að vernda börnin en neitar samt að segja sig frá því verkefni, svo að aðrir geti verndað börn, hvað er hann þá? Hvað heitir maður sem tekur sér vald til að vernda börn en notar það ekki? Ég spyr ráðherrann fyrst þessarar spurningar.