barnavernd.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og er mjög stoltur af því að vera barnamálaráðherra og mjög stoltur af þeim breytingum sem við erum að vinna að í barnaverndarkerfinu þegar kemur að börnum heilt yfir. Hluti af þeim breytingum snýr m.a. að því að í öllum aðgerðum og allri þeirri vinnu sem er í gangi gagnvart börnum sem eru á flótta sé tekið meira tillit til þeirra, það sé unnið eftir barnasáttmálanum og þeirra greina sem þar eru. Við höfum þegar séð umbætur hvað þetta snertir, t.d. í kærunefnd útlendingamála sem hefur verið að gera breytingar. Við vorum að setja af stað samstarfsverkefni núna í Hafnarfirði gagnvart fylgdarlausum börnum þar sem á að taka þá umgjörð algjörlega til endurskoðunar. En það er hins vegar svo að þessu verður ekki breytt á einni nóttu. Það er líka þannig að þegar við nálgumst þennan málaflokk þá þurfum við heilt yfir alls staðar að huga meira að málefnum barna. Það munum við sjá í heildarlöggjöf sem verið er að vinna að í samstarfi við alla flokka og fer vonandi í samráðsgátt á næstu vikum sem mun kalla á umfangsmiklar lagabreytingar, m.a. á barnaverndarlögum til að styrkja þau í sessi. Ef þingmaðurinn treystir ekki þeim sem hér stendur til að vinna áfram að þessari vinnu þá hvet ég hann til að flytja vantraust á ráðherrann.