barnavernd.
Forseti. Það þarf ekkert að lýsa vantrausti á ráðherra, við vitum alveg hvað það leikrit myndi þýða hér. Það sem skiptir aftur á móti máli er að fá að vita hvort ráðherra ætlar að beita sér. Hann talar um heildarlöggjöf, að gera eitthvað hér og þar, en ætlar hann að beita sér í málum af þessum toga? Ef úrskurður kemur frá Útlendingastofnun um að vísa barni úr landi ætlar hann að beita ráðuneyti sínu og því valdi sem honum hefur verið falið til þess að tryggja að því barni verði ekki vísað úr landi og lögum sé fylgt um réttindi barnsins, að það sem er barni fyrir bestu sé haft í forgangi? Það myndi enginn björgunarsveitarmaður mæta í snjóflóðsútkall og taka svo ekki þátt í björgunaraðgerðum. Það er ómenni sem gerir slíkt. Ef ráðherra beitir ekki öllu sínu valdi þegar á að vísa barni úr landi — það þýðir ekki að segja heilt yfir. Eitt barn sem vísað er úr landi án þess að það sé því fyrir bestu er einu barni of mikið. Þau eru orðin 300 núna frá því að við samþykktum þessi lög. (Forseti hringir.) Ætlar ráðherrann að beita öllu sínu valdi þannig að það sé ekki eitt barn sem fer úr landi og þessi lög séu ekki vanvirt?