150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

barnavernd.

[10:58]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Eins og ég rakti í máli mínu áðan verðum við að vinna að lögum og verkefnið er að styrkja lög gagnvart stöðu barna. Verkefnið er að tryggja að unnið sé eftir barnasáttmálanum í einu og öllu í íslensku samfélagi. Þingmaðurinn segir: Það þýðir ekki að hugsa um lögin. Hvað ætlar ráðherrann að gera? (JÞÓ: Nei …) Verkefnið er (Gripið fram í.) að breyta lögum til þess að tryggja að hugað sé að stöðu barna og unnið eftir barnasáttmálanum í einu og öllu og það er (Gripið fram í.) það sem við erum að gera. Það er það sem við vinnum að og ætlum að stefna að, að í einu og öllu sé unnið eftir því. Þar er verið að gera ýmsar breytingar. Dómsmálaráðherra kynnti t.d. um helgina styttri málsmeðferðartíma. Ég talaði um áðan það sem verið er að gera m.a. í úrskurðarnefnd um útlendingamál, verkefni sem við erum að vinna að í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, breytingar á barnaverndarlögunum. Allt þetta miðar að því sama: Að tryggja að við séum að uppfylla barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (Forseti hringir.) í einu og öllu. Það er verkefnið fram undan og það ætlum við að halda áfram að gera.