150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

opinberar fjárfestingar.

[11:04]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Það er alveg rétt að þessi ríkisstjórn hefur ítrekað verið gagnrýnd fyrir allt of bjartsýnar forsendur, ekki aðeins af þeim sem hér stendur heldur af Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði sem hafa ítrekað bent á að ríkisstjórnin þyrfti að gæta meiri varfærni, sem er eitt af grunngildum laga um opinber fjármál, af því að þær hagspár sem væru í gangi væru allt of bjartsýnar. Það er að ganga eftir, gekk eftir á síðasta ári og gengur aftur eftir á þessu ári. Enn stingur fjármálaráðherra höfðinu í sandinn og segir: Ja, við fylgjum bara opinberum spám. Ég bið bara fjármálaráðherra að stinga höfðinu út um gluggann og athuga hvað er í gangi í hagkerfinu og átta sig á því að hagspárnar sem hann hefur byggt á voru of bjartsýnar, sem hann hefur byggt stórkostlega aukin ríkisútgjöld á til þess að belgja út báknið eins og best kemur fram í fjölgun opinberra starfa meðan einkageirinn er að dragast saman. (Gripið fram í.) Það er veruleikinn sem hæstv. ráðherra ætti að átta sig á. Þegar hann spyr hvar ekki hefði átt að auka útgjöld má benda á að hlutfallslega hafa ríkisútgjöldin aukist mest í öllu öðru en heilbrigðis- og velferðarmálum. Það er báknið sem ítrekað er verið að gagnrýna ráðherra fyrir að hafa belgt út á undanförnum tveimur árum.(Forseti hringir.)

Þess vegna spyr ég enn og aftur: Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að fjármagna nauðsynlegar opinberar framkvæmdir og hefur hann stuðning samstarfsflokka (Forseti hringir.) sinna í ríkisstjórn fyrir sölu á Íslandsbanka? Það má benda á að það dugir ekki einu sinni til því að (Forseti hringir.) það þarf að breyta lögum um opinber fjármál ef sú sala á nýtast innviðafjárfestinga.