150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

Norræna ráðherranefndin 2019.

538. mál
[12:11]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á síðustu spurningunni. Það samstarf gekk mjög vel og formennskuáætlunin í heild sinni og öll verkefnin lofa góðu. Um það má lesa í skýrslunni en ég held að segja megi að árið hafi gengið framar öllum vonum. Þetta er lítil stjórnsýsla en allir lögðu sig það vel fram að allt saman gekk fullkomlega vel.

Varðandi spurninguna um áhuga annarra aðila kom ég í ræðu minni inn á áhuga Stóra-Bretlands og þeirra landa sem þar eru. Það er auðvitað stórt hagkerfi, þriðja stærsta viðskiptaland okkar, litlu minna en Norðurlöndin í heild sinni, sem eru í 2. sæti og Bandaríkin þar framar, en það er líka rétt að hin hefðbundnu stórveldi sýna öllum Norðurlöndunum mikinn áhuga. Við sáum til að mynda að Angela Merkel, kannski leiðtogi Evrópu, a.m.k. Þýskalands, kom á forsætisráðherrafund Norðurlandanna sem tákn um að menn vilja gjarnan tengja sig því starfi. Við höfum séð það áður, m.a. í starfi Bandaríkjanna, auðvitað Rússlands og að einhverju leyti Kína, að þeir vilja gjarnan tengjast þeirri vinnu sem hér fer fram, hvort sem er á norðurskautssvæðinu eða í Norðurskautsráðinu, en einnig bara við það sem er að gerast á Norðurlöndum. Í okkar stefnu erum við líka að segja að við viljum gjarnan geta sýnt fram á það sem heild, Norðurlöndin, að við séum að okkar mati með jákvæðari og betri samfélög og viljum bjóða þegnum heims að horfa til Norðurlandanna í auknum mæli, einnig og ekki síst á viðskiptasviðinu, að sjá þar möguleika fyrir almenning og fyrirtæki í öðrum löndum að leita norrænna lausna og þess vegna erum við m.a. að fara í þessa framtíðarsýn í græna kerfinu. Við trúum því að við getum verið (Forseti hringir.) hjálpleg til að allur heimurinn verði grænni og að við verðum þar sem fyrirmynd.