Alþjóðaþingmannasambandið 2019.
Virðulegur forseti. Ég biðst afsökunar á því að umræðan hér er kannski farin að snúa að einhverju öðru en nákvæmlega því sem stendur í þessari ágætu skýrslu um Alþjóðaþingmannasambandið. En ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta og held að það sé mjög mikilvægt að við höldum þessu á lofti. Það er einmitt sagan, það er einmitt það sem er að fara í sögubækurnar, hversu miklum árangri við Íslendingar höfum náð á stuttum tíma. Og þegar ég segi Íslendingar þá vil ég að sjálfsögðu þakka þeim ríkisstjórnum sem þurftu að takast á við það verkefni og þeim þingmönnum sem sátu hér í þessum sal. En ég er alveg sammála hv. þingmanni, það er auðvitað fyrst og fremst fólkið í landinu sem axlaði þessa ábyrgð. Það er líka vegna þess að við höfum gefið fólkinu í landinu svigrúm til að gera það. Mér finnst stundum heyrast of mikil neikvæðni úr þessu púlti hér þegar verið er að ræða efnahagsmál því að staða efnahagsmála á Íslandi er mjög góð. Þrátt fyrir að við séum núna að koma út úr hagvaxtarskeiðinu og upplifum einhvern samdrátt þá er íslenska ríkið engu að síður mjög vel í stakk búið til að takast á við það ástand.
Ég var á opnum fundi í hv. efnahags- og viðskiptanefnd í morgun þar sem við vorum með seðlabankastjóra og fórum yfir peningamálin og þá stöðu. Hér hafa vextir lækkað mikið og enn er meira að segja svigrúm til að lækka vexti ef þörf krefur. Heimilin í landinu hafa aukið sparnað mikið þannig að mér finnst líka mikilvægt að við sem hér stöndum tölum af mikilli ábyrgð í þessum efnum. Þrátt fyrir það að hér sé að verða einhver samdráttur og því miður aukið atvinnuleysi, sem er að sjálfsögðu mikill ókostur og krefjandi verkefni fyrir okkur, er það engu síður þannig að íslenskt samfélag er vel í stakk búið að takast á við það (Forseti hringir.) enda höfum við notað tímann ofboðslega vel og greitt niður ríkisskuldir í svo miklu magni að ríkið stendur vel að vígi til að takast á við þær kröfur sem fram undan eru á næstu misserum.