150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

NATO-þingið 2019.

556. mál
[15:53]
Horfa

Frsm. ÍNATO (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég flyt skýrslu Íslandsdeildar NATO-þingsins fyrir árið 2019, í fjarveru formanns. Með mér í Íslandsdeildinni eru hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, sem er formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, og Þorgerður K. Gunnarsdóttir er varaformaður.

Virðulegur forseti. Þetta verður einhvers konar ágrip úr þeirri skýrslu sem liggur fyrir og ætla ég fyrst að bera niður í kafla sem fjallar almennt um NATO-þingið og því næst ætla ég að fjalla um helstu fundi sem Íslandsdeildin sækir, þ.e. febrúarfund, vorfund og ársfund nefndarinnar. Svo ætla ég að ljúka máli mínu á inngangskaflanum sem dregur ágætlega saman störf nefndarinnar á þessu starfsári sem við fjöllum um hér, 2019. Ég bið um leyfi forseta að grípa niður í skýrsluna.

NATO-þingið er þingmannasamtök sem hefur allt frá árinu 1955 verið vettvangur þingmanna aðildarríkja NATO til að ræða öryggis- og varnarmál. Fram til ársins 1999 bar þingið heitið Norður-Atlantshafsþingið, en heitir síðan NATO-þingið. Á síðustu árum hefur aðildar- og aukaaðildarríkjum NATO-þingsins fjölgað ört og hefur starfssvið þess verið víkkað í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa í ríkjum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum og ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu. Níu lýðræðisríki úr hópi fyrrverandi kommúnistaríkja eiga nú aukaaðild að þinginu, auk hlutlausu Evrópuríkjanna fjögurra, Austurríkis, Sviss, Svíþjóðar og Finnlands, sem þýðir að þau geta tekið þátt í störfum og umræðum á þinginu. Störf þingsins beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild, efnahagslegum og pólitískum vandamálum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og hinu hnattræna öryggiskerfi. Með Rose-Roth-áætluninni styður þingið nú einnig við þróun þingbundins lýðræðis í ríkjum álfunnar og nálægum ríkjum.

Í Atlantshafssáttmálanum frá árinu 1949 var ekki gert ráð fyrir þinglegri ráðgjafarsamkundu en með tímanum óx þeirri skoðun fylgi að nauðsyn væri á skipulegu samstarfi þjóðþinga í tengslum við og til stuðnings NATO. Þingið hefur ekki formlega stöðu innan bandalagsins en smám saman hefur komist á náin og virk samvinna stofnananna. Meginhlutverk þingsins er að efla samstöðu og samráð þjóðþinga á sviði öryggis- og varnarmála. Þingið kemur saman tvisvar á ári, til vorfundar og ársfundar að hausti.

Starfsemi þingsins fer að mestu fram í fimm málefnanefndum, stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og nefnd um borgaralegt öryggi. Þeir þrír þingmenn sem sæti eiga í Íslandsdeildinni skipta með sér þessum nefndum. Auk þess fer mikið starf fram á vegum Miðjarðarhafshópsins sem þó hefur ekki stöðu formlegrar málefnanefndar. Þessar nefndir eru meginvettvangur umræðna, þær fjalla um samtímamál sem upp koma á starfssviði þeirra og vinna um þau skýrslur. Nefndarálit eru oftast sett fram í formi tilmæla, yfirlýsinga eða ályktana sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um. Tilmælum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins, sem fer með æðsta ákvörðunarvald innan NATO, og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða. Ályktunum þingsins er hins vegar beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna.

Þótt þingið sé óháð NATO hafa samskipti þess við bandalagið smám saman tekið á sig fastara form. Á meðal formlegra samskipta má í fyrsta lagi nefna formleg svör við tilmælum þingsins frá framkvæmdastjóra bandalagsins fyrir hönd Norður-Atlantshafsráðsins. Í öðru lagi flytur framkvæmdastjóri bandalagsins ávarp á vorfundum og ársfundum NATO-þingsins og svarar fyrirspurnum þingmanna. Í þriðja lagi koma stjórnarnefnd NATO-þingsins og Norður-Atlantshafsráðið árlega saman til fundar í höfuðstöðvum NATO í Brussel.

Á NATO-þinginu eiga sæti 266 þingmenn frá aðildarríkjunum 29. Fjöldi fulltrúa frá hverju landi ræðst að mestu af fólksfjölda. Stærsta sendinefndin er sú bandaríska með 36 þingmenn en sú íslenska er í hópi þeirra smæstu með þrjá þingmenn. Auk fulltrúanna má hvert þjóðþing tilnefna jafn marga varamenn sem mega taka þátt í störfum þingsins en hafa ekki atkvæðisrétt. Ráðherrar í ríkisstjórnum mega ekki vera fulltrúar á NATO-þinginu. Alls á 61 þingmaður frá 13 aukaaðildarríkjum sæti á NATO-þinginu og taka þeir þátt í nefndarfundum, nema fundum stjórnarnefndar, og þingfundum en hafa ekki atkvæðisrétt. Þeir hafa þó rétt til þess að leggja fram breytingartillögur.

NATO-þingið, eins og ég kom inn á í upphafi, heldur tvo þingfundi árlega; vorfund og ársfund að hausti. Þetta eru þeir tveir stóru fundir sem Íslandsdeildin fer sameiginlega á, en síðan fara nefndarmenn á þá fundi sem eru tileinkaðir þeim nefndum sem við skiptum með okkur. Á svokölluðum febrúarfundum heldur stjórnarnefndin fund með framkvæmdastjóra NATO og Norður-Atlantshafsráðinu, auk þess sem stjórnmálanefnd, efnahagsnefnd og varnar- og öryggismálanefnd halda sameiginlegan fund. Jafnframt kemur stjórnarnefnd þingsins saman til fundar í mars eða apríl ár hvert. Þá sækir fjöldi NATO-þingmanna árlegan fund um Atlantshafssamstarfið sem fram fer í desember í samstarfi NATO-þingsins og bandaríska Atlantshafsráðsins. Loks halda nefndir og undirnefndir þingsins reglulega málstofur og fundi á milli þingfunda.

Árið 2019 tók Íslandsdeildin þátt í febrúarfundunum í Brussel, vorfundi í Bratislava og ársfundi í London. Á febrúarfundi NATO-þingsins í Brussel, sem er þessi sameiginlegi fundur stjórnmálanefndar, efnahagsnefndar og varnar- og öryggismálanefndar, héldu þar erindi að venju sérfræðingar, embættismenn og herforingjar Atlantshafsbandalagsins og svöruðu spurningum þingmanna. Þá var árlegur fundur stjórnarnefndar NATO-þingsins með Norður-Atlantshafsráðinu í höfuðstöðvum NATO.

Helstu mál á dagskrá þessa fundar voru baráttan gegn hryðjuverkum, jafnari byrðar aðildarríkja NATO, samskipti Evrópusambandsins og NATO — sem í auknum mæli, held ég leyfi mér að fullyrða, kjarnast í þessum fundum NATO-þingsins — og samskipti NATO og Rússlands og loks óstöðugleikinn í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Umræðum stjórnaði Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri bandalagsins, sem jafnframt flutti inngangserindi. Stoltenberg ræddi m.a. um mikilvægi þess að búa að nýjustu tækni í varnarmálum og fór yfir helstu verkefni sem NATO hefur tekið þátt í. Stoltenberg sagði jákvætt hve vel hefði tekist hjá aðildarríkjum að auka framlög sín til öryggis- og varnarmála en mikilvægt væri að gera enn betur. Hann ræddi jafnframt hversu mikilvægt væri að ræða loftslagsmálin. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, formaður okkar í nefndinni, vakti máls á því að alþjóðasamfélagið og NATO hefði lengi stutt afgönsku þjóðina í vegferð hennar að friðsælu samfélagi. Mikilvægt væri að tryggja aðkomu kvenna að friðarferlinu og við uppbyggingu landsins. Jákvæð teikn væru á lofti hvað þetta varðaði, með tilliti til réttinda og stöðu kvenna innan afgansks samfélags. Í ljósi þess að friðarviðræður væru á döfinni og fyrirséð að fjöldi hermanna yrði líklega kallaður heim frá Afganistan beindi Njáll Trausti þeirri spurningu til Stoltenbergs hvernig best væri að styðja við þessa þróun. Stoltenberg svaraði því til að aðildarríkjum NATO væri umhugað um að styðja við afgönsku þjóðina. Ákvörðun um að fara frá Afganistan þyrftu aðildarríkin að taka sameiginlega.

Á vorfundi NATO-þingsins vinna málefnanefndir skýrslur og eiga fundi með fulltrúum ríkisstjórna og alþjóðastofnana og sérfræðingum. Þá er haldinn þingfundur þar sem fjallar um þau mál sem hæst ber í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu. Helstu umræðuefni þess fundar sem fór fram síðastliðið vor voru samskipti NATO og Rússlands og hvernig Moskva ýtir undir óstöðugleika í Úkraínu, áskoranir frá Kína og netöryggi. Einnig fór fram umræða um fjölþættar ógnir, viðnámsgetu ríkja til að bregðast við óvæntum atburðum, gervigreind og afvopnunarmál. Rætt var um samskipti NATO-þingsins við rússneska þingið og var áhersla lögð á mikilvægi þess að áframhaldandi samræður ættu sér stað milli Rússa og NATO-þingsins. Samstarf við ríki utan bandalagsins og uppbygging stöðugleika bæði til suðurs og austurs er einnig í brennidepli auk áframhaldandi stuðnings í Afganistan. Þá var rætt um stöðu mála varðandi fullgildingu aðildar Norður-Makedóníu að NATO. Undirbúningur þinglegrar meðferðar vegna fullgildingarinnar er þegar hafinn hérlendis og kominn vel áleiðis í flestum aðildarríkjunum.

Stjórnmálanefnd fjallaði um þrjár skýrslur á fundum sínum. Sú fyrsta fjallar um öryggi og stöðugleika í Afríku og áskoranir og tækifæri fyrir NATO, önnur um samband NATO og Rússlands og sú þriðja um 70 ára afmæli NATO og mikilvægi bandalagsins. Efnahagsnefnd NATO-þingsins fjallaði í skýrslum sínum m.a. um málefni Norður-Makedóníu: Stjórnmálalegar breytingar, aðild að NATO og efnahagsleg umskipti og efnahagsþvinganir sem tæki í utanríkisstefnu.

Varnar- og öryggismálanefnd þingsins fjallað um drög að þremur skýrslum og ein þeirra fjallar um þróun öryggismála á norðurslóðum þar sem nefndarmenn lýsti m.a. áhyggjum sínum af því að samningur um meðaldræg kjarnavopn, sá er gerður var hér á leiðtogafundi Gorbatsjevs og Reagans í Höfða, væri í hættu vegna rússneskra samningsbrota og ítrekuðu fundarmenn mikilvægi þess að bandalagið héldi áfram að kalla eftir því að Rússar færu að samningum.

Varðandi málefni norðurslóða voru nefndarmenn sammála um að halda áfram að viðhalda lágri spennu á svæðinu, eins og það er kallað. Nú hygg ég, af því að virðulegur forseti hefur hvatt okkur hv. þingmenn til að nota íslenskt mál, að vafalítið sé til enskt orð sem lýsir þessu eitthvað nánar en ég læt það vera. Ég held að okkur öllum sé ljóst mikilvægi þessarar lágu spennu sem þar hefur verið, þrátt fyrir aukna hernaðarviðveru á svæðinu, einkum Rússa.

Þá vil ég draga fram að Þorgerður K. Gunnarsdóttir tók þátt í fyrsta hádegisfundi þingkvenna NATO-þingsins sem haldinn var til að vekja máls á mikilvægi jafnréttismála innan NATO sem utan. Fyrirhugað er að slíkur fundur verði haldinn árlega.

Nú er ég búinn að fara yfir febrúarfundinn og vorfundinn en þá er það þessi stóri fundur, ársfundurinn. Meginumræður ársfundarins fóru fram í fimm málefnanefndum þingsins á grundvelli skýrslna, sem unnar voru af nefndarmönnum, og fyrirlestra alþjóðlegra sérfræðinga um öryggismál. Þá var þingfundur haldinn þar sem fjallað var um þau mál sem hæst hafði borið í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu og greidd atkvæði um ályktanir og ákvarðanir þingsins. Helstu umræðuefni fundarins voru málefni norðurslóða, þau höfðu mikinn sess á þessu starfsári, 2019, og ég hygg að það breytist ekki á þessu ári, en einnig átökin í Sýrlandi, loftslagsmál og netöryggi.

Stjórnmálanefnd fjallaði um þrjár skýrslur á fundum sínum. Fyrsta skýrslan fjallaði um NATO í 70 ár og af hverju bandalagið væri jafn mikilvægt og raun ber vitni. Í annarri skýrslunni var fjallað um öryggi og stöðugleika í Afríku með tilliti til áskorana og tækifæra á vettvangi NATO. Þriðja skýrslan fjallaði um tengsl NATO og Rússlands. Þá fóru fram pallborðsumræður um hlutverk Kína og stöðu mála við Persaflóa.

Ég ætla að ljúka máli mínu, virðulegi forseti, með því að fara í inngangskaflann sem dregur ágætlega saman starfið á þessu ári, starf Íslandsdeildar NATO-þingsins og helstu málefni sem voru á dagskrá á NATO-þinginu á starfsárinu 2019. Ég hef komið inn á það að einhverju marki í umfjöllun um þessa þrjá stóru fundi að á vettvangi þingsins er rík áhersla lögð á samskipti NATO og Rússlands. Aukin hernaðarumsvif Rússlands og sniðganga þeirra á alþjóðaskuldbindingum, sem hafa haft neikvæð áhrif á öryggishorfur í Evrópu, voru í brennidepli á hverjum og einum af þessum fundum. Samskiptin hafa ekki verið eins slæm frá lokum kalda stríðsins og versnuðu enn frekar í kjölfar brota Rússa á samningi um meðaldræg kjarnavopn. Þá ályktaði þingið um stuðning við stefnu NATO eftir endalok samningsins en Bandaríkin riftu honum í ágúst. Meðlimir þingsins voru þó sammála um mikilvægi áframhaldandi viðræðna á milli Rússa og NATO-þingsins.

Málefni norðurslóða fengu aukna athygli á árinu og ályktaði þingið um þróun öryggismála á svæðinu. Sérstök áhersla var lögð á hernaðarlegt mikilvægi Norður-Atlantshafsins með tilliti til hafsvæðisins milli Íslands, Grænlands og Bretlands. Þingmenn voru sammála um mikilvægi þess að viðhalda lágri spennu á svæðinu, eins og ég kom að, virðulegi forseti, eins og verið hefði, þrátt fyrir að hernaðarviðvera hefði aukist, einkum Rússa. Þá var rætt um að áhrif loftslagsbreytinga væru öryggis- og varnarmál, m.a. vegna hækkunar yfirborðs sjávar og aukins aðgengis að náttúruauðlindum á norðurslóðum.

Ítrekað var fjallað um netöryggi og ályktaði þingið um styrkingu varna NATO varðandi netöryggi. Vaxandi áhyggjur voru meðal þingmanna af netárásum þar sem eðli þeirra væri af öðrum toga en við þekkjum og erfitt væri að rekja slíkar árásir. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að samhæfa aðgerðir aðildarríkjanna og bandalagsins sjálfs og skiptast á reynslu og þekkingu aðildarríkjanna. Þá var áréttað að nauðsynlegt væri að fjármagn yrði aukið til að viðhalda tækniþróun og getu bandalagsins.

Einnig var rætt mikið um varnarútgjöld aðildarríkjanna í ljósi nýrra öryggisógna og hvernig bandalagið getur tekist á við fjölþættar áskoranir og tryggt getu sína og styrk til þess að standa við skuldbindingar sínar. Þá var sjónum beint að mikilvægi þess að jafna byrðar á bandalagsþjóðir, auka fjárframlög Evrópuríkja og að aðildarríkin stefndu að því að ná markmiði NATO um að útgjöld til varnarmála verði 2% af vergri landsframleiðslu fyrir árið 2024 til að mæta breyttum öryggishorfum. — Þá þyrftum við nú, virðulegi forseti, ef þetta væri markmiðið hér, að bæta allhressilega í, við erum svo langt frá því að vera þar.

Af öðrum stórum málum sem tekin voru til umfjöllunar á fundum NATO-þingsins árið 2019 má nefna óstöðugleikann í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs og í Norður-Afríku, ekki síst í tengslum við átökin í Sýrlandi og þann mikla flóttamannavanda sem þau hafa valdið á nágrannasvæðum og í Evrópu. Einnig var rætt um þróun mála í Afganistan og áframhaldandi stuðning bandalagsins við stjórnvöld í landinu, fjölþættar ógnir, viðnámsgetu ríkja til að bregðast við óvæntum atburðum, aukna ógn af kafbátum og afvopnunarmál. Einnig fór fram umræða um jafnréttismál innan NATO og mikilvægi þess að innleiða þau í starfsemi og stefnur tengdar öryggis- og varnarmálum með innleiðingu öryggisályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.

Lýkur þá þessum kafla sem dregur ágætlega saman starf nefndarinnar og hvernig það er byggt upp.

Ég vil að lokum, virðulegi forseti, fyrir hönd nefndarinnar koma á framfæri þökkum til ritara nefndarinnar. Undir skýrsluna rita hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson formaður, Þorgerður K. Gunnarsdóttir varaformaður, og Willum Þór Þórsson.