NATO-þingið 2019.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Willum Þór fyrir yfirferð hans á störfum Íslandsdeildar NATO-þingsins á síðasta ári. Nú veit ég að hv. þingmaður hefur ekki, starfa sinna vegna sem formaður fjárlaganefndar og sem þingflokksformaður Framsóknarflokksins, haft færi á því að sækja eins marga fundi og hann hefði eflaust kosið. Ég skil það alveg ef hann getur kannski ekki komið nákvæmt inn á fyrirspurn mína í þessu andsvari, en mér finnst nokkuð áhugavert að í þessari skýrslu sé ekki beint fjallað um Tyrkland sérstaklega, þrátt fyrir innrás Tyrkja í Sýrland með loftárásum í október sl., sem olli miklum taugatitringi innan NATO-ríkjanna. Mig langaði að heyra aðeins nánar um þessa hernaðaraðgerð Tyrklands sem tók þarna ákvörðun upp á eigin spýtur, að fara í loftárásir á annað sjálfstætt ríki, og hvernig þær umræður hafa verið innan NATO eða á NATO-þingunum sem hv. þm. Willum Þór Þórsson hefur sótt.