NATO-þingið 2019.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og mér finnst þetta mjög góð spurning. Það vill til að ég sótti ársfundinn í haust sem var haldinn nánast ofan í alvarlegustu atburðina sem voru akkúrat að gerast þá og þær viðræður sem helstu leiðtogar, Angela Merkel, Stoltenberg fyrir NATO, voru í við Erdogan, að reyna að ná einhverju uppbyggilegu samtali við hann og ná einhverjum tökum á þessari viðkvæmu stöðu. Þetta blandast auðvitað fjölmörgum öðrum þáttum eins og hv. þingmaður veit. Stoltenberg varð fyrir svörum, eins og ég kom inn á í skýrslunni áðan, og fékk fjölmargar spurningar sem sneru að ástandinu. Það sem mér fannst kannski hvað magnaðast var hvað hann var hreinskiptinn í tilsvörum en um leið hvernig hann reyndi að virða, ég leyfi mér að fullyrða, ólík sjónarmið eftir aðildarríkjum eins og þau birtust í fyrirspurnunum þannig að það er kannski erfitt fyrir mig að svara því nákvæmlega. En það hafði gerst kannski tveim dögum áður að Angela Merkel hafði átt fund með Erdogan og talað býsna afgerandi um að þetta þyrfti að stoppa og Stoltenberg var þá á leið á fund daginn eftir á fund með Erdogan. Ég veit ekki hverju ég ætti að svara nákvæmlega spurningunni öðru en því að maður áttaði sig bara mjög vel á því þarna á vettvangi hvað það er mikilvægt að vera í nálægð og upplifa hvernig tilfinningarnar gagnvart svona flókinni stöðu raungerist.