NATO-þingið 2019.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni góðar spurningar. Ég vil segja það varðandi innrás í Sýrland og loftárásir, sem við ræddum í fyrra andsvari, og Tyrkland, að þær voru fordæmdar eins og þær komu fyrir. Það var alveg skýrt, af því að ég kom ekki að því í andsvari.
Varðandi Líbíu þá er þetta nú ansi umfangsmikið þing og við skiptum okkur á nefndir og ég er í efnahags- og viðskiptanefndinni og þar var ekki rætt um Líbíu. Ég er þess fullviss að það hefur verið rætt á öðrum vettvangi á sama stað. Ég var hins vegar viðstaddur þegar við ræddum Afganistan og okkar formaður fór ágætlega yfir það og ég fór sérstaklega yfir þann þátt, hvernig formaður okkar kom okkar sjónarmiðum að varðandi Afganistan. En ég væri bara að reyna að skauta mér í gegnum eitthvert svar, sem væri ekki alveg eðlilegt, ef ég ætlaði að ræða Líbíu af þessum vettvangi.