150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum:

Frá fjármála- og efnahagsráðherra vegna fyrirspurna á þskj. 610, skuldbindingar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins vegna laga um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, frá Ólafi Ísleifssyni. Frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 572, um starfsmannamál ráðuneytisins, frá Birgi Þórarinssyni; á þskj. 584, um kafbátaleit, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytisins við lögfræðilegar álitsgerðir, frá Ólafi Ísleifssyni, og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, frá Ólafi Ísleifssyni. Loks er bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 904, um starfsemi Hafrannsóknastofnunar, frá Bjarna Jónssyni.