dráttarvextir vegna dóms Landsréttar.
Virðulegi forseti. Fyrir réttum níu mánuðum féll dómur í Landsrétti þar sem ríkinu var gert að greiða eldri borgurum samkvæmt dómsorði ríflega 5 milljarða kr. plús vexti og dráttarvexti. Nú vill svo til að það er einungis aðili máls sem hefur fengið greidda dráttarvexti. Enginn annar hefur fengið það, ekki neinn. Það er lán að við eigum rannsóknarblaðamenn og annað kvöld upp úr kl. 20 mun verða sýndur Kveiksþáttur þar sem reynt verður að kafa ofan í það hvernig á því stendur að það er einungis aðili máls sem hefur fengið greidda dráttarvexti þrátt fyrir að ríkisvaldið hafi sjálft gengið á undan með því fordæmi að þar sem um prófmál er að ræða hefur verið leitast við að mismuna a.m.k. ekki þeim sem eiga réttindi samkvæmt því dómsorði.
Mig langar því til að spyrja hæstv. félags- og barnamálaráðherra: Hver var það sem sá um þá ákvörðun sem liggur í því að einungis aðili máls fær greidda dráttarvexti? Hefur hæstv. ráðherra eitthvað íhugað að beita sér í málinu? Má gera ráð fyrir því að allir fái greidda dráttarvexti samkvæmt dómsorði og þessi mistök verði leiðrétt eða mun það virkilega verða svo að það þurfi líka að sækja þetta mál sérstaklega fyrir óvilhöllum dómstóli vegna þess að löggjafinn heykist á því að fylgja eigin regluverki?