150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

dráttarvextir vegna dóms Landsréttar.

[15:13]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég ræddi þessa fyrirspurn hv. þingmanns ekki fyrir svo löngu síðan og sagði þá að ég vissi ekki annað en að þarna væri unnið eftir lögum og Tryggingastofnun væri að vinna eftir þeim lögum sem giltu varðandi þessi mál. Tryggingastofnun greiddi út með þeim hætti sem hv. þingmaður vitnar hér til. Það var þannig að sá aðili sem dómurinn laut að fékk greidda dráttarvexti. Aðrir fengu greitt samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þeirri ákvörðun Tryggingastofnunar var síðan áfrýjað eða hún kærð til úrskurðarnefndar um velferðarmál sem vísaði málinu svo til félagsmálaráðuneytisins til úrskurðar. Þessi ákvörðun liggur núna hjá félagsmálaráðuneytinu, að úrskurða um þetta. Ég held að það sé ekki eðlilegt að ráðherra sé að tjá sig um málið á meðan það liggur þar inni og væntanlega mun koma niðurstaða í það hjá ráðuneytinu vegna þess að það er með þeim hætti sem löggjafinn vinnur. Það eru lög, það eru stofnanir sem framfylgja lögunum og svo í þessu tilfelli var áfrýjað til úrskurðarnefndar sem síðan vísar málinu til ráðuneytisins. Það er í vinnslu og meðferð í ráðuneytinu og ég vonast til þess að það gangi hratt og vel.