150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

dráttarvextir vegna dóms Landsréttar.

[15:14]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. En er það ekki svolítið sérstakt að það þurfi að skipa eitthvert ráð og vera í einhverju kæruferli út af föllnum dómi Landsréttar? Er það orðið þannig að 2. gr. stjórnarskrárinnar sé bara fótumtroðin og hér eigi að taka löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald og troða því öllu í eina sæng? Í rauninni er það algerlega skýrt, virðulegi forseti, hjá flestum þeim sem skoða þetta mál að það féll dómur. Það er engum vafa undirorpið. Það er ekki greitt samkvæmt honum og í raun og veru svarar hæstv. ráðherra ekki spurningunni, ég er aðallega spyrja hvernig hann ætli að beita sér fyrir því að dómsorðið sé haldið. Mér finnst líka dapurt að horfa upp á það að við skulum þurfa rannsóknarblaðamennsku til að reyna að kafa ofan í fallinn dóm sem Hæstiréttur vildi ekki einu sinni taka til áfrýjunar vegna þess að hann var svo sammála því sem hafði komið fram í Landsrétti.