dráttarvextir vegna dóms Landsréttar.
Virðulegur forseti. Eins og ég rakti í fyrra andsvari þá varð það niðurstaðan hjá stofnuninni sem fer að lögunum að gera þetta með þessum hætti. Það var síðan kært til úrskurðarnefndar sem vísaði málinu til ráðuneytisins þannig að þar er málið í meðförum. Það kemur inn á borð ráðuneytisins með þeim hætti að vera áfrýjað þangað og ég held að það sé bara rétt að leyfa málinu að fara sinn farveg þar. Ráðuneytið mun væntanlega úrskurða í málinu. Ég held að það sé ekki rétt að ráðherra sé að tjá sig mikið um málið á meðan það er í vinnslu, heldur sé rétt að leyfa ráðuneytinu að fara yfir málið og kveða upp úrskurð sinn. Við getum svo tekið pólitíska umræðu um það í framhaldinu.