150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

orkufrekur iðnaður og lagning sæstrengs.

[15:21]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Ég vil að sjálfsögðu þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en verð að leyfa mér að segja að svarið var ekki mjög skýrt í öllum atriðum. Hér var spurt um afstöðu ríkisstjórnarinnar til stóriðju annars vegar og lagningar sæstrengs hins vegar. Það er auðvitað mjög gagnlegt í örstuttum fyrirspurnatíma að fara yfir fall WOW og alls konar vandamál sem hér er við að fást, en þetta var afmörkuð fyrirspurn um stefnu ríkisstjórnar hæstv. forsætisráðherra vegna ummæla hæstv. iðnaðarráðherra. Auðvitað vitum við að það var samþykkt í þessu móverki öllu saman sem við gengum í gegnum á liðnu ári að lagning sæstrengs er komin undir ákvörðun Alþingis. Það liggur fyrir. En ég var að spyrja um stefnu ríkisstjórnar hæstv. forsætisráðherra þar sem í situr hæstv. iðnaðarráðherra sem sýnist giska áhugasöm, svo ekki sé meira sagt, um lagningu sæstrengs. Hvað verður þá um störf þess vel menntaða fólks og þau hálaunastörf sem við höfum hér í orkufrekum iðnaði? (Forseti hringir.) Auðvitað stendur upp á hæstv. ríkisstjórn að svara fyrir þetta.