150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

beiting Dyflinnarreglugerðarinnar.

[15:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég verð að byrja á að svara varðandi Dyflinnarmálin sérstaklega af því að hv. þingmaður fer ranglega með hvernig þau eru í íslenskri lagaframkvæmd. Það er þannig að í hverju einstöku máli fer fram sjálfstæð rannsókn á því hvort að viðtökuríkið geti staðið við skuldbindingar sínar, hvernig réttindi umsækjandans eru og hvort það séu einhverjar sérstakar ástæður til að taka málið til efnismeðferðar. Einstaklingar eru ekki sjálfkrafa sendir á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar út af engum ástæðum. Það er það góða við kerfið okkar á Íslandi, málin fá alltaf einstaklingsbundið mat hverju sinni.

Í ákvæðum útlendingalaga eru þrjár ástæður til að taka mál til efnismeðferðar sem annars færu í Dyflinnarmeðferð: Það eru sérstök tengsl við landið, ef það eru sérstakar ástæður varðandi m.a. stöðu eða að einstaklingur ætti erfitt uppdráttar í því viðtökuríki sem verið er að beina aðilanum að, og ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að aðilinn sótti hér um. Þetta eru sérstakar ástæður þar sem hægt er að fá efnismeðferð þannig að það er rangt hjá hv. þingmanni, sem hann heldur hér fram, að við sendum einstaklinga alveg sjálfkrafa á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til baka. Það eru tvö lönd í dag sem við sendum ekki til baka vegna stöðu þeirra þar og það eru Grikkland og Ungverjaland.

Við þurfum auðvitað að skoða kerfið í heild sinni og ég hef margoft sagt það að við þurfum að skoða stöðu barna og fólks í viðkvæmri stöðu sérstaklega. En það var líka gert þegar þverpólitísk þingmannanefnd fjallaði um útlendingalögin og skoðaði sérstaklega hvað væri barni fyrir bestu, setti það sérstaklega í lögin að það ætti að vega þungt við mat á því hvort umsókn barns fengið efnismeðferð hvað væri barni fyrir bestu, skoðaði alþjóðlega mannréttindasáttmála og fyrir gildistöku nýrra laga voru þau sérstaklega borin saman við barnasáttmálann og ákvæði hans til að sjá hvað væri hægt að gera betur. En þetta eru lög um fólk og við verðum alltaf að skoða hvað er hægt að gera betur. (Forseti hringir.) Við eigum ekki, eins og hv. þingmaður segir, að bregðast við einstaka máli enda verður jafnræðis og gagnsæis að vera gætt í þessum málaflokki líkt og öðrum.