150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

beiting Dyflinnarreglugerðarinnar.

[15:29]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra sagði að fólk væri ekki sent sjálfkrafa úr landi en fór síðan út í frekar nákvæma lýsingu á því nákvæmlega hvaða kerfislægu þættir það eru sem ákvarða hvort fólk sé sent á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eða ekki, ef það kemur ekki frá þessum tilteknu tveimur löndum og ef það uppfyllir ekki þessar skyldur þá er það sent úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Ég velti fyrir mér hvort hæstv. ráðherra þyki það bara eðlilegt ástand að við venjumst því að árum saman sé fjölmiðlaumfjöllun um einstök mál sem fólk hlýtur að vera sammála um að séu fráleit ef litið er á þau efnislega.

Ég vek athygli hæstv. ráðherra á því að ég sagði ekki að Manís biðu einhverjar hörmungar í Portúgal. Ég býst ekkert við því sjálfur með þeim fyrirvara að ég hef ekki skoðað mál hans sérstaklega fyrir utan fjölmiðlaumfjöllun. Ég velti því fyrir mér hvers vegna ekki má taka á málum hans hér, bara skoða þau. Hvers vegna þurfum við að hafa prósessinn þannig að það þurfi sjálfkrafa að hafna fólki á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar nema af einhverjum sérstökum ástæðum eins og þeim að fólk gæti verið sent til Ungverjalands eða (Forseti hringir.) ef hætta er á pyntingum eða morðum þar? Af hverju getum við ekki bara tekið þessi mál til efnismeðferðar vegna þess að við viljum það? (Forseti hringir.) Vegna þess að þegar 17 ára trans piltur frá Íran þarf að fá hæli og vill fá hæli hér þá viljum við það líka. (Forseti hringir.) Hvað er svona erfitt við það? (Forseti hringir.) Telur hæstv. ráðherra það vera eðlilegt ástand að við séum alltaf að sjá umfjallanir í fjölmiðlum um þessi mál?

(Forseti (SJS): Forseti biður hv. þingmenn að huga að tímamörkum.)