aðkoma stjórnvalda að lífskjarasamningunum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eins og kom raunar fram í fyrra svari mínu við fyrirspurn hv. þm. Loga Einarssonar er ríkið núna stór viðsemjandi í þeim kjaraviðræðum sem standa yfir af hálfu opinberra starfsmanna. Þar hafa lífskjarasamningarnir verið leiðarljós okkar en það er hins vegar ljóst að hagsmunir ólíkra stéttarfélaga eru að sjálfsögðu mismunandi. Við erum land sem er með mikinn tekjujöfnuð og einn mesta tekjujöfnuð í Evrópu. Við erum líka með mjög há laun almennt og það er að sjálfsögðu ákveðið sérkenni á íslenskum vinnumarkaði sem gerir það að verkum að þegar deilt er um það til að mynda hvort meta eigi menntun til launa stangast á ákveðin sjónarmið ólíkra stéttarfélaga. Það sem fólk sameinaðist um í þessum lífskjarasamningum var að það vildi forgangsraða launahækkun lægst launuðu hópanna og aðgerðir ríkisstjórnarinnar miðuðu í sömu átt. Þær aðgerðir, sem ég hef margoft farið yfir, miðuðu að því að koma til móts við tekjulægri hópa, hvort sem er um að ræða skattkerfisbreytingar, stuðning við húsnæðiskerfið, barnabætur eða hvaðeina.
Ég hef talað fyrir lífskjarasamningunum af því að ég held að þeir hafi verið mikilvægt skref og séu mikilvægt skref í því að ná stöðugleika á vinnumarkaði, sem er að sjálfsögðu vandmeðfarið þegar þær aðstæður eru uppi í efnahagslífinu sem nú eru. Ég held um leið að það sé algjörlega lífsnauðsynlegt að við komum málefnum vinnumarkaðarins í það horf sem mér fannst við ná mjög mikilvægum áfanga í með lífskjarasamningunum, ekki aðeins með því sem var þá boðað í aðgerðum og nákvæmri samsetningu samninganna heldur líka öllu utanumhaldi. Þá er ég að vísa í nýtt þjóðhagsráð. Þá er ég að vísa í launatölfræðinefndina sem nú er farin af stað, allt það sem lýtur að umgjörð vinnumarkaðarins. Ég vona að hv. þingmaður, sem þekkir þetta auðvitað mjög vel, sé sammála mér um að við þurfum að huga að þessari umgjörð þannig að við séum ekki nánast á núllpunkti í hvert skipti sem samningaviðræður fara af stað.