150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

innviðir og þjóðaröryggi.

567. mál
[15:46]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég var fjarverandi í þarsíðustu viku og missti af áhugaverðri umræðu um atkvæðagreiðslu um aðra skýrslu en finnst upplagt að koma hingað núna og byggja á þeirri umræðu sem ég kynnti mér. Þótt vissulega megi að ákveðnu leyti líta á þessa skýrslubeiðni sem vantraust á þá ráðherra sem farið hafa með dómsmál, innanríkismál og samgöngumál síðustu ár er það ekki það sem mig langar að nefna sérstaklega, heldur það að í umræðu í þarsíðustu viku voru ýmsir þingmenn, ekki síst eiginlega þeir sem eru á þessari skýrslubeiðni, á því að sú skýrslubeiðni væri ótæk vegna þess að, ef marka má orðin og túlka þau, helst til mikil pólitík væri í skýrslunni og jafnvel verið að undirbyggja eitthvert þingmál, frumvarp eða eitthvað slíkt, og það væri alveg ómögulegt að hér væri verið að biðja um slíka skýrslu.

Ég styð skýrslubeiðnina núna vegna þess að ég styð skýrslubeiðnir almennt en ég stóðst ekki mátið að koma hingað upp og segja þegar ég les yfir þessa skýrslubeiðni, bæði greinargerð og ýmsa liði, (Forseti hringir.) að það er saga til næsta bæjar og jafnvel næstu bæjarfélaga að þingflokki Sjálfstæðismanna þyki ekki pólitík í því (Forseti hringir.) að hér sé verið að íhuga og leggja til að taka skipulagsvald af ákveðnum sveitarfélögum í völdum málum — en ég styð þessa skýrslubeiðni.