150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

innviðir og þjóðaröryggi.

567. mál
[15:48]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það er ástæða til að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að styðja þessa ágætu skýrslubeiðni. Ef hún les þetta og ber saman við skýrslubeiðnina sem við ræddum hérna fyrir tæpum tveimur vikum sér hún að það er nú ýmis munur á þeim. Aðalatriði málsins er hins vegar að í þingskapanefnd og þeirri umræðu sem þar hefur farið fram hef ég haldið frammi því sjónarmiði, og mun gera áfram, að það sé eðlilegra að skýrslubeiðnir almennt fái meiri umfjöllun á vegum þingsins áður en þær koma til atkvæða í þinginu með þeim hætti að það sé a.m.k. hægt að koma að einhverjum athugasemdum áður en til atkvæðagreiðslunnar kemur án þess að það gerist eingöngu með einnar mínútu innslagi eins og nú gefst kostur á. Ég held að það ætti að vera, bæði hvað varðar þessa skýrslubeiðni og aðrar skýrslubeiðnir (Forseti hringir.) sem fram hafa komið, bara til að bæta málin en ekki til að tefja fyrir eða trufla það að þingmenn geti fengið þær upplýsingar sem þeir raunverulega vilja ná fram.