150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

innviðir og þjóðaröryggi.

567. mál
[15:49]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það hefur komið alveg skýrt fram, eins og í umræðunni í þarsíðustu viku, að einmitt vegna umræðunnar sem á sér stað hér, þótt hún sé mínúta á mann, eru margir í salnum af því að það er að fara að eiga sér stað atkvæðagreiðsla. Það hefur leitt til þess að við þær ábendingar hafa flutningsmenn dregið skýrslubeiðnirnar til baka, bætt þær og lagt aftur fram. Ferlið eins og það er núna býður upp á nákvæmlega það án þess að setja inn einhvers konar hindranir sem annars væri mögulega hægt að nota til að stöðva skýrslubeiðnir frá þingmönnum eða einhvern veginn letja þær. Núverandi ferli býður upp á það sem hv. þingmaður er að nefna, að það verði einhver umræða og ábendingar sem geta og hafa leitt til að skýrslubeiðnir eru lagaðar.