innviðir og þjóðaröryggi.
Herra forseti. Það er hárrétt hjá hv. þm. Jóni Þór Ólafssyni að það hefur í einstökum tilvikum leitt til þess að þingmenn hafa fallist á að breyta með einhverjum hætti skýrslubeiðni sinni en það hefur þó gerst undir þeim formerkjum að í loftinu hefur legið hótun um að fella viðkomandi skýrslubeiðni í þinginu. Það er alveg óþarfi að málin fari í þann farveg og þess vegna hafa verið uppi tillögur í þingskapanefnd um að farin væri einhver mildari leið til að ná fram umræðu meðal þingmanna um skýrslubeiðni áður en til þess kemur að hún sé borin undir atkvæði. Ég held að það færi miklu betur á því að inn í þingsköpin væri sett eitthvert ákvæði sem fæli í sér frestun á því að málið komi til atkvæða, hugsanlega umræða eða skoðun í nefnd en þó auðvitað með þeim formerkjum að á endanum gætu þingmenn knúið fram atkvæðagreiðslu um skýrslubeiðnina eins og þeir vilja hafa hana.