innviðir og þjóðaröryggi.
Forseti. Ég skil ekki skýrslubeiðni öðruvísi en svo að þetta sé bara beiðni um upplýsingar, að það sé verið að biðja um að þær séu teknar saman og þeim safnað. Það kemur svo sem ekkert á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn standi í vegi fyrir því á einhvern hátt með því að hafa umræðu um hvort þetta séu réttar upplýsingar til að biðja um eða hvort það megi gera það á þennan eða hinn háttinn. Ég skil þetta ekki betur, en ég væri til í að heyra ef ég misskil málið á einhvern hátt. Er ekki sjálfsagður réttur okkar að biðja um upplýsingar? Þarf það að vera eitthvað flókið? Ég skil ekki alveg þá andstöðu sem á sér stað hérna við þessari mjög einföldu upplýsingabeiðni.