150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

innviðir og þjóðaröryggi.

567. mál
[15:52]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil bara halda því til haga í ljósi umræðunnar, af því að þetta er til umræðu í þingskapanefnd, að þær hugmyndir sem þar hafa verið ræddar snúast ekki um að koma í veg fyrir upplýsingar. Við erum með dæmi um skýrslubeiðni sem forsætisráðherra hefur verið að vinna með í eitt ár. Í þingsköpunum er hins vegar talað um að það eigi að skila skýrslum innan ákveðins tíma. Þær falla bara ekki allar innan þess tímaramma og það er eitt sem við gætum þurft að kanna áður en við samþykkjum skýrslubeiðni. Er hægt að svara skýrslubeiðni innan þess ramma eða ekki? Er ástæða til að kanna það, er t.d. ástæða til að kanna eitthvað annað varðandi skýrslubeiðni? Þetta eru praktískar upplýsingar. Hugmyndir hafa komið upp um að ef hún er mjög viðamikil og stór sé hægt að leggja hana fyrir nefnd og óska eftir því að nefndin fái einhverjar praktískar upplýsingar til að leggja fram þegar skýrslubeiðnin er svo tekin til afgreiðslu, að það fylgi, og þá er kominn tilhlýðilegur tími til að vinna skýrsluna sem er kannski sex mánuðir en ekki 11 vikur. (Forseti hringir.) Um það snýst málið. Það hefur aldrei komið fram í þingskapanefndarumræðunni að stöðva neitt og þetta verður aldrei frá þingmönnum tekið.